Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 43
Með nýju raforkulögunum er verið að
innleiða markaðsvæðingu á raforku-
iðnaðinum á Islandi. Nú þarf að skilja
að einkaleyfisþætti og samkeppnisþætti
starfseminnar.
Einkaleyfisþættir starfseminnar eru í
flutnings- og dreifikerfi en samkeppni
verður innleidd í framleiðslu og sölu
raforkunnar. Þetta kallar á verulegar
skipulagsbreytingar.
Rarik veltir um 6 milljörðum og hjá fyrirtækinu starfa um
220 manns. Starfsemi og bækistöðvar fyrirtækisins dreifast
um stóran hluta landsins.
Sambærileg kjör „Rarik er rótgróið fyrirtæki með dreifða
starfsemi og sinnir mikilvægu hlutverki í því að tryggja
afhendingu rafmagns um dreifðar byggðir landsins. Það er
því mikilvægt að vel takist til í þeim breytingum sem
framundan eru. Það er hlutverk Rarik, og þar með mitt í
þessu verkefni, að tryggja hagsmuni landsbyggðarinnar
þannig að fólk og fyrirtæki þar búi við sambærileg kjör og á
suðvesturhorninu hvað varðar orkukostnað og öryggi. Sam-
keppnishæfni þeirra sé tryggð hvað þetta varðar. Auk skipu-
lagsmálanna þarf svo auðvitað einnig að sinna öðrum verk-
efnum sem tilheyra þessu starfi," segir Tryggvi Þór.
Tryggvi fæddist í Reykjavík árið 1956, lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum við Tjörnina 1976 og prófi í rafmagns-
verkfræði við Háskóla íslands 1980. Hann hóf störf hjá Rarik
í júní 1980 og gegndi þar m.a. starfi deildarstjóra og síðar yfir-
verkfræðings fram til 1993 er hann tók við starfi umdæmis-
stjóra Rarik á Norðurlandi eystra 1993 og hefur starfað þar
síðan. Auk ýmissa trúnaðarstarfa fyrir Rarik hefur Tryggvi
starfað að félagsmálum og sinnt ýmsum trúnaðarstörfum.
Tryggvi Þór er sonur Haraldar Sumarliðasonar húsa-
smíðameistara, fyrrverandi formanns Samtaka iðnaðarins,
og móðir hans er Sigurbjörg Sigurjónsdóttir. „Eg á fjögur
systkini sem eru Jóninna Huld verslunarmaður, Brynja Þor-
björg iðjuþjálfi, Jóhann Friðgeir rafmagnsverkfræðingur,
sem starfar hjá Flögu, og Baldvin Björn lögfræðingur, sem
starfar hjá Landwell. Eg er kvæntur Guðrúnu S. Jónsdóttur
leikskólakennara og eigum við þrjár dætur, Hafdísi Maríu,
nema við HI, Sigrúnu Hildi og Jóhönnu Kolbrúnu. Þá á ég
tvö barnabörn, Aron Daða Bergþórsson og Öldu Ósk Sig-
rúnardóttur."
Helstu áhugamál hjá Tryggva Þór eru golf og veiði, bæði
stangveiði og skotveiði. ,„4uk þess hef ég gaman af að fara á
skfði, þótt ég hafi ekki mikið gert af því undanfarna vetur.“ 33
„Breytingar eru jafnan af hinu góða í þessu efni og ný tæki-
færi myndast. Eðlilegt er að menn hafi skiptar skoðanir á
því hvort þessar breytingar henti í okkar litla þjóðfélagi,"
segir Kristján Jónsson, fráfarandi forstjóri Rarik.
Kristján
afhendir keflið
Kristján Jónsson, fráfarandi forstjóri Rafmagnsveitna ríkis-
ins, ákvað að hætta störfum þann 1. október sl. eftír 27
farsæl ár í starfi. „Eg óska Tryggva alls hins besta í nýju
starfi. Nú eru í gangi miklar breytíngar á rekstrarumhverfi
orkufyrirtækja, ný raforkulög hafa tekið gildi. Sett verður upp
sérstakt fyrirtæki fyrir flutning á raífnagni um landið og það
hefur í för með sér verulegar breytingar hjá öllum orkufyrir-
tækjum, skipulag þeirra breytist verulega. Orkufyrirtækin
eru að fara inn í markaðsfyrirtæki þannig að nýjar áherslur
munu ríkja,“ segir Kristján sem á sæti í svokallaðri 19 manna
nefnd sem fjallar um skipulag raforkuflutnings.
„Raforkulögin tóku gildi nú í vor og verið er að vinna að
útfærslu ákveðinna þátta varðandi fyrirkomulag flutninga-
fyrirtækisins, jöfnun á flutnings- og dreifingarkostnaði.
Samkeppnin hefst að hluta 1. janúar 2005, en þá verður hún
opnuð fyrir fyrirtæki sem eru með yfir 100 kílóvatta afl. Þann
1. janúar 2007 opnast markaðurinn alveg, fyrir heimili og
fyrirtæki. Þannig geta menn leitað tilboða í rafmagn hjá
hverjum sem er.
Breytingar eru jafnan af hinu góða í þessu efni og ný
tækifæri myndast. Eðlilegt er að menn hafi skiptar skoðanir
á því hvort þessar breytingar henti í okkar litla þjóðfélagi.
Akvörðun hefur hins vegar verið tekin um þessar breyt-
ingar og nauðsynlegt að aðlagast þeim með þeim tæki-
færum og ógnunum sem þeim fylgja," segir Kristján. S3
43