Frjáls verslun - 01.10.2003, Síða 18
FORSÍÐUGREIN: UPPÞOT í VIÐSKIPTALÍFINU
HVERJIR EIGNAST NORÐURLJÓSIN?
Verður Jón flsgeir
Hann er farinn. Jón Ólafsson, stjórnarformaður og aðaleig-
andi Norðurljósa, hefur haldið sinn síðasta stjórnarfund í
fyrirtækinu. Brotthvarf hans gat eiginlega ekki endað
öðru vísi en með hvelli. Þannig er saga Stöðvar 2 frá upphafi;
hún einkennist af flugeldasýningum í fjölmiðlum.
Jón Ólafsson hefur í sjálfu sér ekki sagt mikið. Hann á þó
eina af setningum ársins: „Drengurinn er einstakur höfðingi.“
Þau orð féllu eftir að hann sagðist hafa selt Jóni Ásgeiri Jóhann-
essyni, forstjóra Baugs, 62% hlut sinn í Norðurljósum. Jón
Ásgeir hafði áður sent einkaþotu til London til að ná í Jón
Ólafsson og teyma hann að samningaborðinu. Gengið var þó
frá samningunum tveimur dögum síðar í London; aðfararnótt
laugardagsins 15. nóvember. „Ég er búinn að selja allt mitt á
íslandi," sagði Jón Ólafsson og eiginkona hans, Helga Hilmars-
dóttir, bætti þvi við í sjónvarpsþættinum Sjálfstæðu fólki að þau
væru búin að selja allt nema hestana sína. Um söluna til Jóns
Ásgeirs sagði Jón Ólafsson í Morgunblaðinu: „Ég er mjög
sáttur með þessa niðurstöðu."
Þessi sala Jóns Ólafssonar til nafna síns Jóns Ásgeirs er samt
hin furðulegasta. Mönnum ber einfaldlega ekki saman. í raun
skilur „meira en talsvert" á milli. J ón Ólafsson og J ón Ásgeir eru
sammála. En Sigurður Einarsson, stjórnai'formaður Kauþings-
Búnaðarbanka, sem á stærsta hlutann, 55%, í sambankaláni
Norðurljósa á móti Landsbankanum og hollenska bankanum
ABN Arnro, hefur sagt um þennan gjörning að Jón Ólafsson
eigi ennþá 62% hlut í Norðurljósunum. Þannig sé staðan, ein-
faldlega! Hann viti ekki til þess að eigendaskipti hafi orðið á
bréfunum. Kaupþing Búnaðarbanki, ásamt Landsbanka og
Amro, eru með veð í hlutabréfum Jóns
Ólafssonar vegna sambankalánsins.
Jón Ásgeir lét hins vegar hafa það
eftir sér að það væri ekkert
leyndarmál að hann og félög
honum tengd ásamt Kaupþingi
Búnaðarbanka hefðu gengið sam-
eiginlega að kaupum á ríflega 62%
hlutjóns Ólafssonar í Norðurljósum.
Það er nú það, þetta er svolítil
sápuópera, ekki satt?
Jón Ásgeir. Núna er óvíst
hvort hann verði með í
breiðum hópi fjárfesta sem
kemur með nýtt hlutafé í
fyrirtækið.
Skuldir Norðurljósa í lok júní
Heildarskuldir .................... 8,6 milljarðar
Þar af:
Langtímaskuldir ................. 5,4 milljarðar
Skammtímaskuldir 3,2 milljarðar
Egið fé: ..........þ.............. 193 milljónir
3,9 milljarðar
Sambankalán
Björgunaráætlun
Nýtt hlutafé í peningum
Niðurfelling lána .......
1 milljarður
4 milljarðar
Farinn. Jón Ólafsson gengur af stjórnarfundi Norðurljósa í
síðasta skiptið.
Björgólfur og bræðurnir í Bakkavör Þótt öll umræðan hafi
snúist um það að Jón Ásgeir hafi eignast hlut Jóns Ólafssonar í
Norðurljósum þá er engan veginn víst að hann verði á meðal
þeirra sem koma inn með nýtt fé í fýrirtækið og verði þar með
í forsvari fyrir stöðina. Ymis önnur nöfn eru núna nefnd til
sögunnar og jafnvel er talið að um býsna breiðan hóp fjárfesta
geti orðið að ræða. Rætt hefur verið um S-hópinn undir forystu
Finns Ingólfssonar, forstjóra VIS, Kára Stefánsson, forstjóra
Islenskrar erfðagreiningar, Björgólf Guðmundsson, en hann á
ráðandi hlut í Skjá einum, bræðurna Ágúst og Lýð Guðmunds-
syni í Bakkavör, og ýmsa aðra athafnamenn sem eiga fé. Fullyrt
er að ýmsir sýni íýrirtækinu áhuga og að alls ekki sé víst Jón
Ásgeir verði innanborðs þegar upp verður staðið. Lengi vel var
talið nauðsynlegt að það eitt dygði að Jón Ólafsson færi frá stöð-
inni til að nýir Jjárfestar kæmu inn, en eitthvað virðist nærvera
Jóns Ásgeirs vera farin að trufla.