Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 55
Gengi íslenskrar erfðagreiningar hefur hækkað undanfarið
°g er það í samræmi við þróunina erlendis.
Besta ávöxtun
síðustu 2ja ára
Virði 27.11.01 Gengi 27.11.01 Gengi 27.11.03 Hækkun
Flugleiðir 13.611 1,36 5,9 334,70%
Pharmaco 106.878 9,04 35 287,37%
Bakhavör Group 27.835 6,95 18,2 161,87%
FiskmarkaSur íslands 292 1,89 4,1 117,35%
Landsbanki islands 44.250 2,87 5,85 103,64%
Kaupþing BúnaSarbanki 90.191 110,48 215,5 95,06%
Fjárfestingarf. Straumur 20.125 2,50 4,85 93,68%
Nýherji 2.429 4,84 9,1 88,00%
Kögun 2.565 15,61 28,5 82,60%
Besta ávöxtunin og þar sést greinilega að Flugleiðir og
Pharmaco eru efst á blaði.
framsækin markmið og stjórnendum
t>ar hefur í meginatriðum tekist að
standa við þau, eins og hefur komið
fram hjá greiningardeildum bank-
anna. Fjárfestar hafa fylgst spenntir
með fyrirtækinu og munu fylgjast vel
með þróuninni næstu árin. Einkaleyfi
á ýmsum frumlyfjum er að renna út
og Pharmaco-menn hafa hug á að
verða fyrstir á markað með samheita-
lyf. Ef þetta gengur eftir getur orðið
um mikla tekjuöflun að ræða.
Pharmaco-menn hafa einnig greint frá áætlunum sínum um að
þeir hyggist skrá félagið í erlenda kauphöll á næsta ári - þetta
hefur m.a. komið fram hér í Fijálsri verslun - og fylgist mark-
aðurinn mjög vel með þessu. Útrás Pharmaco hefur verið
farsæl fram til þessa en fyrirtækið hefur m.a. keypt verksmiðju
í Búlgaríu, Möltu og Serbíu. Fyrirtækið er því stöðugt að verða
alþjóðavæddara en áður og allt virðist ganga mjög vel.
Eins og sjá má á meðfylgjandi grafi var gengi Pharmaco um
34 þegar grafið var unnið en hæst hefur gengið verið 38 og var
það í kringum 9 mánaða uppgjörið í haust Á markaðnum eru
mjög skiptar skoðanir á því hvort félagið sé yfirverðlagt. Miklar
væntingar eru gerðar til félagsins og þarf það að skila mjög
góðum árangri til að standa undir þeim. Greiningardeildir
bankanna eru sammála um að það þurfi einhveijar fréttir af
berast af félaginu til að gengið hækki á næstunni. Það er því
ekki ólíklegt að gengið haldist svipað næstu vikurnar.
Hækkanir erlendis Áhugavert hefur verið
að fylgjast með gengi Islenskrar erfðagrein-
ingar að undanförnu. Gengið hefur farið
hækkandi sem er tilbreyting frá því sem áður
var. Ýmsar fréttir hafa verið að berast frá fyrir-
tækinu sem gera þessar hækkanir mögu-
legar, t.d. uppgötvanir sem tengjast beinþynn-
ingu og hjartaáföllum. Viðskipti með bréf í
fyrirtækinu virðast hafa verið að aukast. Það
er mjög mikilvægt og bendir til þess
að erlendir aðilar séu farnir að koma í
auknum mæli að viðskiptum með bréf
í félaginu. Áður hefur það háð félaginu
að veltan hefur verið dræm þó svo að
félagið sé skráð í erlendri kauphöll.
Það hefur þýtt að stórir erlendir fjár-
festar hafa ekki haft áhuga á að koma
að félaginu. Þetta er mögulega að
breytast núna.
Uppgötvanir fyrirtækisins hafa náð
athygli ijárfesta og flölmiðla erlendis
og það hefur án nokkurs vafa haft mikil áhrif. Einnig hefur áhrif
á gengi fyrirtækisins nýleg frétt þess efnis að Islensk erfða-
greining sé byijuð með lyfiaþróun. Erlendir greiningaraðilar
hafa lagt mikla áherslu á að fyrirtækið nái að breyta vísinda-
legum niðurstöðum í viðskiptaleg tækifæri þannig að niður-
stöðurnar fari að skila tekjum í kassann. Uppgjör fyrirtækisins
á þriðja ársljórðungi gaf góð fyrirheit. íslensk erfðagreining er
hætt að ganga á eigið fé félagsins og er farin að skila jákvæðu
ijárstreymi. Það má hinsvegar ekki gleyma því að bréf í
íslenskri erfðagreiningu eru áhættuflárfesting. Þegar hluta-
bréfamarkaðir taka að lækka þá fara tjárfestarnir fyrst úr
áhættumestu félögunum sem eru félög á borð við Islenska
erfðagreiningu. Það sem af er þessu ári hafa hins vegar verið
miklar hækkanir á erlendum hlutabréfamörkuðum. Menn eru
því meira tilbúnir til að setja fé inn í fyrirtæki á borð við íslenska
erfðagreiningu sem leiðir til hækkunar á gengi félagsins. HH
Úrvalsvísitalan
Meginmunurinn nú eða fyrir tveimur árum er sá að bilið
milli félaga hefur breikkað og það eru færri félög sem stjórna
þróun vísitölunnar. í dag eru það bankarnir og Pharmaco
sem ráða þróuninni og skýrir það að langmestu leyti þróunina
á þessu ári þar sem úrvalsvísitalan heíúr hækkað mikið.
Verðmætustu fyrirtækin í Kauphöll íslands
Markaðsvirði (í milljörðum kr.)
Pharmaco............................. 106,8
Kaupþing Búnaðarbanki................. 90,2
íslandsbanki.......................... 69,3
Landsbanki ........................... 44,3
Landssíminn........................... 43,6
Eimskip............................... 29,9
Sex verðmætustu félögin í Kauphöllinni. Eins
og sjá má eru Pharmaco og bankarnir efst á
listanum.
55