Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2004, Page 8

Frjáls verslun - 01.03.2004, Page 8
„Innkaupakort Islandsbanka gefur fyrirtækjum færi á að ná fram auknu hagræði og nýta tíma og mannskap betur. Dæmi er um 79% sparnað við umsýslu reikninga", segir Bjarni Ármannsson, forstjóri íslandsbanka. I\lý leið fyrir fyrirtæki til að stjórna og halda utan um innkaup IXIýtt Innkaupakort íslandsbanka hefur leitt til uerulegs hagræðis hjá fyrirtækjum w slandsbanki hefur, fyrstur íslenskra banka, hafið dreif- ingu á nýrri tegund kredit- korts fyrir fyrirtæki, Innkaupa- korti íslandsbanka. Kortið, sem gefið er út í samstarfi við Master- card, gerir fyrirtækjum kleift að ná fram auknu öryggi í innkaup- um og hagræði í umsýslu reikn- inga, og spara þannig talsverðan tíma og kostnað. Innkaupakort (e. purchasing card) hefur náð mikilli útbreiðslu erlendis en hérlendis hafa hátt í 200 íslensk fyrirtæki tekið Innkaupakort í notkun. Kortið hentar jafnt stór- um sem smáum fyrirtækjum en það er í raun kreditkort sem nýtist við öll innkaup. Sem dæmi má nefna hafa mörg sveitar- félög nýtt Innkaupakortið við öll sín innkaup fyrir mötuneyti skóla og leikskóla en einnig er mjög auðvelt að setja alla fasta reikninga á kortið, svo sem fyrir síma, hita, rafmagn og fasteignagjöld. Mikill sparnaður „Það er ánægjulegt að geta boðið íslenskum fyrirtækjum upp á jafn hagkvæma lausn og Innkaupakort Islandsbanka er“, segir Bjarni Armannsson, forstjóri Islandsbanka. „Það gefiir þeim færi á að ná fram auknu hagræði og nýta tíma og mannskap betur. Dæmi er um 79% sparnað hjá fyrirtæki sem náði að minnka umsýslukostnað fyrir hvern reikning úr 1.457 krónum í 309 krónur“. Með notkun Innkaupakortsins greiðir fyrirtækið aðeins einn reikning, þ.e. kortareikninginn, í stað ótal reikninga Meðal kosta Innkaupakorts íslandsbanka: • Minni skráningarvinna - auðvelt er að flytja færslur rafrænt í bókhald. • Einstok yfirsýn - auðvelt er að greina útgjöld fyrirtækisins niður á korthafa, deildir eða söluaðila. • Öryggi - hægt er að ákvarða úttektar- heimildir fyrir hvert kort. • Þægindi - hægt er að skilgreina hvar hægt er að nota kortið. 8

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.