Frjáls verslun - 01.03.2004, Blaðsíða 95
VÍNUMFJÚLLUN SIGMARS B.
umkringdir vínekrunum. Húsin eru fagurlega skreytt, mörg
þeirra yfir 300 ára gömul. Göturnar eru þröngar og upp við
húsin eru litlir litríkir garðar. í hveiju þorpi og bæ eru falleg
torg og við þau vinaleg veitingahús og vínstofur. Skemmtilegt
er að fara svokallaðar vínleiðir eða Route du Vin. Þetta er 120-
160 km leið (fer eftir því hvaða vegi er ekið um). Á þessari
fögru leið eru um 100 vínbæir og þorp.
Riesling Vínrækt hefur verið stunduð í Elsass frá því á
dögum Rómveija. Stolt héraðsins eru hvítvínin sem sum hver
oru ein þau bestu sem völ er á í heiminum. I Elsass eru
ræktaðar 7 tegundir af þrúgum. Vinsælasta þrúgan er
Riesling. Að öllum líkindum er Rieslingþrúgan upprunnin í
Rínardalnum, hún hefur verið þekkt á Rínarsvæðinu frá því á
14. öld. Villivínviður hefur verið kynbættur og ræktaður. Jarð-
vegur og veðurfar í Elsass virðist henta Rieslingþrúgunni ein-
staklega vel. Hvergi í heiminum eru framleidd jafngóð
Rieslingvín í eins háum gæðaflokki og í Elsass. Rieslingvínin
frá Elsass eru nokkuð frábrugðin þeim þýsku. Þau eru
áfengari, dekkri að lit og þurrari. Af þeim er ilmur af hunangi,
sítrónu og stundum eplum. Af þeim er léttur kryddaður
ávaxtakeimur. Rieslingvínin frá Elsass eru einstaklega þægi-
leg vín, henta vel til að drekka í staðinn fyrir bjór og sterka
drykki. Þau passa vel með krydduðum mat og fiskréttum með
smjörsósum. í verslunum ÁTVR eru nokkur dæmigerð
Rieslingvín frá Elsass. Léon Beyer Riesling á kr. 1.490 er létt
°g þægilegt vín. Rfaffenheim Steinert Riesling á kr. 1.950, sem
er svokallað Alsace Grand Cru. Grand Cru þýðir að vínið
kemur af ekru þar sem aðeins má rækta Riesling-,
Gewiirtstraminer, Pinot Gris- og Muscatþrúgur. Þessar þrúgu-
tegundir eru taldar vera öðrum þrúgum héraðsins æðri.
Tokay Pinot Gris Að mínu mati er merkilegasta vín Elsass
Tokay Pinot Gris. Það hefur algjöra sérstöðu í vínheiminum.
Það er yndislegt eitt sér en passar einnig vel með ýmsum
réttum, kjúklingi, feitum fiski eins og lúðu og einnig með
krydduðum mat. Tokay Pinot Gris passar einnig ljómandi vel
með graflaxi. Það er bragðmikið og með góðri fyllingu.
Merkja má bragð af þurrkuðum ávöxtum, hnetum, grænum
eplum og oft má merkja smá reykbragð.
Rene Mure Pinot Gris Cote de Rouffach er góður fulltrúi
þessara yndislegu vína. Willm Pinot Gris á kr. 1.230 er
nokkuð einfaldara en létt og frískandi. Léon Beyer Tokay
Pinot Gris á kr. 1.570 er sennilega skemmtilegasta Tokay
Pinot Gris vínið í verslunum ÁTVR. Af því er þétt ávaxta- og
kryddbragð, en þó er það þurrt og með góðri sýru. Frábært
vín með mildum ostum og jafnvel villibráð eins og lunda eða
svartfugli.
Gewiirtstraminer Þessi ávaxtaríku og krydduðu vín hafa
náð nokkrum vinsældum hér á landi. Gewurtstraminer er
best eitt sér, en á vel við með mygluostum og reyktum mat,
t.d. reyktum laxi og léttreyktu lamba- eða svínakjöti. Nokkur
munur er á Gewurtstraminer vínum frá hinum ýmsu fram-
leiðendum. Sá munur birtist fyrst og fremst í því hvað vínin
eru þung, þétt eða létt og sýrumikil. Ekta Gewurtstraminer
frá Elsass er Hugel á 1.540, einnig Dopff og Irion Gewurt-
straminer á kr. 1.550. Dietrich Gewiirtstraminer Reserve á kr.
1.270 er áhugavert vín, hálfþurrt, með skemmtilegu bragði af
austurlensku kryddi og ávöxtum, gott borðvín.
Pinot Noír Sérstaða Elsass, miðað við önnur vínræktarhéruð
Frakklands, er sú að Elsassvínin eru ekki skilgreind eftir
svæðum heldur eftir þeim þrúgum sem þau eru pressuð úr.
Hér hefur verið fjallað um helstu og án efa áhugaverðustu
þrúgur Elsasshéraðs, eða Riesling, Tokay, Pinot Gris og
Gewurtstraminer. En önnur vín eru framleidd í héraðinu. I
því sambandi mætti nefna Muscat, Sylvaner, Pinot Blanc og
freyðivínið Crémant d'Alsace. Allt eru þetta hvítvín. Úr einni
þrúgu er framleitt rauðvín og það Pinot Noir. Þetta er létt og
þægilegt rauðvín sem á síðari árum hefur vakið nokkra
athygli í vínheiminum. Því miður er þetta vín ekki til í
verslunum ÁTVR. Vonandi verður þó hafinn innflutningur á
því, þetta er nefnilega skemmtilegt sumarvín. Þess má geta
að úr Pinot Noir þrúgunni er einnig gert rósavín í Elsass.
Vín fyrir íslendinga Ágætur matreiðslumaður hér í Reykja-
vík sagði á sínum tíma að vín frá Elsass væru „vín fynr
íslendinga.“ Þetta eru skemmtileg og friskandi sumarvín. Vín
sem tilvalið er að hafa með sér í sumarbústaðinn. Góð vln
með glóðarsteiktum silungi jafnt sem aðalblábeijum. Þau eru
ekki síður góð ein sér, einkum á það við um Rieslingvínin og
Tokay Pinot Gris. Þegar maður finnur ilminn af góðu
Elsassvíni, sem nýbúið er að hella í glas, þá finnur maður
angan af íslensku sumri. H3
Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum vínum frá
Elsass:
Hugel Riesling, kr. 1.440
Léon Beyer Riesling, kr. 1.470
Pfaffenheim Steinert Riesling, kr. 1.950
Rene Mure Pinot Gris Cote de Rouffach, kr. 1.590
Willm Pinot Gris, kr. 1.230
Léon Beyer Tokay Pinot Gris, kr. 1.570
Hugel Gewurtstraminer, kr. 1.550
Dopf og Irion Gewiirtstraminer, kr. 1.550
Dietrich Gewurtstraminer, kr. 1.290
95