Frjáls verslun - 01.03.2004, Blaðsíða 59
FRÉTTIR
MSN hentugt
sem stiómunartæki
Efdr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
MSN vex að vinsældum sem stjórnunartæki þó að blátt
bann sé lagt við notkun þess á sumum vinnustöðum. Það
er sérstaklega gott í samskiptum milli landa þar sem allir
sitja við sama borð, einnig til að halda fundi og er þá hægt að
vista samskiptin og hafa fundargerðina á þvi formi. Loks er hægt
að hafa hljóð og mynd til viðbótar textaskrifunum þannig að
möguleikarnir eru ýmsir. „Mörg fyrirtæki hafa bannað notkun á
MSN því að stjórnendurnir vilja að athygli starfsmannsins sé
bundin við viðfangsefni fyrirtækisins. Oft hefur MSN-notkun
starfsmanna verið tengd fristundum. En MSN er verkfæri sem
er gagnlegt til síns brúks og getur hentað undir vissum
kringumstæðum, en það hentar ekki fyrir löng og mikil samtöl
og kemur auðvitað ekki í staðinn fyrir að standa upp og ræða við
fólk,“ segir Helgi Þór Ingason, dósent í véla- og iðnaðarverk-
fræði við Háskóla Islands.
Helgi Þór Ingason, dósent í
véla- og iðnaðarverkfræði.
Á MSN-inu sést alltaf
hveijir eru inni og hverjir ekki
og er hægt að senda þeim
skeyti sem eru við. Helgi Þór
segir hentugt að nota MSN til
að koma á milli upplýsingum eða undirbúa jarðveginn fyrir
símtal eða fund. „MSN getur haft ýmsa kosti fram yfir síma-
fundi. Símafundirnir eru sniðugir en þeir kosta töluvert og
það þarf að undirbúa þá og hafa stjórn á þeim. Ég hef sjálfur
ekki tekið þátt í fundum á MSN en sé í hendi mér að þar væri
hægt að hafa betri stjórn og nota tæknina til að senda gögn á
milli,“ segir hann og kveðst sjálfur hafa notað
wvvvv.blogger.com í netfundi. Það sé gott verkfæri með
marga möguleika. Hver og einn verði bara að finna sjálfur
hvers konar tækjum hann vill beita hveiju sinni. B3
þína lausn?
Hverjum treystir
Viðskiptavinir Maritech treysta á MBS Navision sem viðskiptahugbúnað. Maritech hefur aðstoðað
fhörg af framsæknustu fyrirtækjum ogsveitarfélögum landsins við að ná árangri í rekstri, með
þróun, sölu og innleiðingu á MBS Navision. Hjá Maritech starfa margir af hæfustu MBS Navision
sérfræðingum landsins. Komdu í hópinn og hafðu samband við söludeild Maritech.
Microsoft
C E R T I F I E D
Business Solutions
Partner
Meðal viðskiptavina Maritech eru:
SLÆ-Mt2*Sprm fi 0 Landsbankinn ^aTanta
Reykjavík: Hlíðasmári 14 | 201 Kópavogur | Sími: 545 3200 | postur@maritech.is Akureyri: Skipagata 18 | 600 Akureyri | Sími 545-3500 | akureyri@maritech.is
maritech