Frjáls verslun - 01.03.2004, Blaðsíða 38
LJTTEKT KEA
ÚTGERÐ OG FISKUINNSLA
Kea á í dag 17% hlut í Samherja sem rekur frystihús á Dalvík.
Kea hafði rekið útgerð og íiskvinnslu í áratugi, aðallega í
Hrísey og á Dalvík. Kea hafði einnig keypt togara og rækju-
verksmiðju í Olafsvík sem nú hefur verið lokað og tengt sig
inn í veiðar á uppsjávarfiski. Þessi starfsemi gekk ekki nógu
vel þannig að sjávarútvegshlutinn var sameinaður Samherja
og fékk Kea 17% hlut í Samherja sem nú er eign Kaldbaks.
Samheiji rekur annað fullkomnasta frystihús á landinu.
MÁLNINGARUERKSMIÐJA
Húsnæði Hörpu-Sjafnar, áður málningarverksmiðjunnar
Sjafnar.
Kea hafði rekið málningarverksmiðjuna Sjöfn á Akureyri.
Hún var sameinuð Hörpu í Reykjavík og eignarhluturinn
síðan seldur. Kaldbakur og Kea eiga því ekkert í málningar-
verksmiðjunni í dag.
SLÁTURHÚS OG KJÖTUINNSLA
Sláturhús og kjötvinnsla Kea á Akureyri var sameinuð sömu
starfsemi KÞ á Húsavík. Kjötvinnsla Goða í Borgarnesi og
Reykjavík var keypt en síðan lokað að mestu leyti þannig að
nú reka menn sauðJjársláturhús og kjötvinnslu á Húsavík
undir nafninu Norðlenska matborðið og stórgripaslátrun og
kjötvinnslu á Akureyri.
Kea keypti öll hlutabréf í Norðlenska matborðinu síðasta
haust og markaði það endurkomu félagsins inn í atvinnu-
starfsemi. Þessi hlutur var keyptur með það fyrir augum að
selja aftur til Búsældar, hlutafélags bænda í Eyjafirði,
EIGNASAFN KALDBAKS
SAMHERJ118%
TRYGGINGAMIDSTÖÐIN 32,84%
SÍLDARUINNSLAN 8%
SJÖFN 50%
UATNSMÝRIN EHF. B0%'::'
NORÐURLJÓS 8%
* Uatnsmýrin ehf. á BSÍ, lóð og húseignir Umferðarmiðstöðuar-
innar í Reykjavík.
flllar ueraldlegar eignir KEA runnu til Kaldbaks hf. í ársbyrjun
2002. Eigið fé KEA var 2.079 milljónir króna í árslok 2003.
samvinnuhlutabréf, sem voru blanda af skuldabréfum og
hlutabréfum, voru reynd en virkuðu ekkert sérlega vel og
dugðu ekki til að uppfylla ijármagnsþarfir kaupfélaganna.
Rekstrarformið hefti samstarf og sameiningu, t.d. mjólkur-
samlaganna á Akureyri og Húsavík.
„Starfsemin var ljölbreytt og það var erfitt að halda yfir-
sýn. Tímarnir breyttust hraðar og hraðar. Samkeppnin
harðnaði stöðugt og menn þurftu að vera meira vakandi
gagnvart tækninýjungum, markaðnum og Jjármögnun. Kea
hafði ekki sama aðgang að fjármagni og við höfum í dag. Það
voru því margar ástæður fyrir því að menn ákváðu að fara út
í þessar miklu breytingar á Kea,“ segir Andri.
Styrkir og sprotaverkefnl Fyrirtæki Kea voru seld og
félagið stokkað upp. Kea hefði orðið gjaldþrota ef það hefði
dregist 3-4 árum lengur að fara í þessa uppstokkun. Félagið
var mjög skuldsett og reksturinn rekinn með tapi í mörgum
greinum, t.d. í sjávarútvegi og kjötvinnslu. Með upp-
stokkuninni seldi Kea eignir, minnkaði skuldir og fékk
peninga í kassann. Mörg af þeim fyrirtækjum, sem seld voru,
hafa blómstrað hjá nýjum eigendum. Ef hlutur Kea í Kaldbak
væri seldur í dag myndi félagið standa eftir með 3-3,5
milljarða króna og eru þá ótalin þau verðmæti sem deilt var
út til félagsmanna við stofnun Kaldbaks og til kúabænda við
stofnun Norðurmjólkur. (Það voru 34% hlutur í Norðurmjólk
eða um 400 milljónir króna.) Tekjur félagsins eru í dag litlar
aðrar en arður af verðbréfaeign. A aðalfundi Kaldbaks í vetur
var samþykkt að greiða 35% arð, eða 166 milljónir króna til
Kea, og nemur það líklega um 80% af tekjum félagsins á
árinu. Andri býst við að ráðstafað verði 60-80 milljónum í
rekstur félagsins, styrki og fleira. 30-50 milljónir fari í sprota-
verkefni og svo verði mjólkurbændum ef til vill lánaðar 120
milljónir króna.
Ávaxtað á varfaerinn hátt Efnahagsreikningur Kea segir
Andri að sé í dag frekar einfaldur, eigið fé upp á 2 milljarða og
langmest af eignunum bundið í 27% hlut í Jjárfestingafélaginu
38