Frjáls verslun - 01.03.2004, Blaðsíða 72
Eiríkur Friðriksson matreiðslumaður og Jóhann Sigurðsson, hótelstjóri og
annar eigenda Hótel Cabins í Borgartúni.
Salatbarinn Jóhann segist hafa fundið fyrir
miklum þrýstingi varðandi matsölu, en þegar
þeir tóku við hótelinu var aðeins boðið upp á
morgunverð.
„Eg greip tækifærið þegar Eiríkur Friðriks-
son matreiðslumaður, sem þekktastur er fyrir
Eikaborgara og salatbar Eika, kom til íslands
aftur eftir dvöl í Ameríku. Ég réð hann hingað
inn og ætlaði í upphafi að
hafa salatbar í hádeginu til
að þjóna gestum þó að ég
efaðist um að rekstrar-
grundvöllur væri fyrir
honum. En okkur til ánægju
og undrunar hefur salat-
barinn notið mikilla vin-
sælda og hér er meira og minna fullt alla daga.
Enda er maturinn góður og verðið enn betra,“
segir Jóhann glettinn á svip.
„Það hefur einnig verið þrýst á að haft sé
opið á kvöldin og um helgar og þó við höfum
„Gerum okkar
besta til að öllum
líði vel,“ segir
Jóhann Sigurðsson
hótelstjóri.
og með maíbyijun. Verðið er á svipuðu róli og á
gistiheimili og þvi hagkvæmt fyrir gesti að koma
hér og nota peningana, sem sparast, í annað.“
HÓTEL CABIN:
HÓTELIÐ UIÐ SJÓINN
að er létt yfir morgunverðarsal Hótel Cabins í Borgar-
túni þegar komið er inn á snjóamorgni í marslok. Á
veggjunum hanga myndir sem fanga athygli gestanna
og borðin eru klædd ljóslitum dúkum í stíl við vorið sem er
að koma. Eigendur hótelsins hafa nýlega gert það upp og
árangurinn er greinilegur.
„Við keyptum hótelið fyrir rúmu ári,“ segir Jóhann
Sigurðsson, hótelstjóri og annar eigenda Hótel Cabins, en
faðir hans er meðeigandi. „Þegar við komum að rekstrinum
var augljóst að laga þurfti ýmislegt og við fórum í það að
endurgera herbergin, skipta út dýnum og öðru sem þurfti og
máluðum að utan og innan. Þessar lagfæringar hafa skilað sér
margfalt og ljóst að gestir okkar kunna að meta þær.“
GÓð bjónusta Hótel Cabin er dálítið sérstakt. Hótelið er
talið 2-3 stjörnu en býður i raun upp á mun meiri þjónustu en
stjörnurnar gefa til kynna.
„Við erum með 152 herbergi hér, allt fremur lítil herbergi,
eða um 10 fm., en í þeim er allt það sem gestir okkar þarfnast.
Gott rúm, sturta, sjónvarp og tölvutenging. Hér er móttaka 24
tíma eins og á dýrari hótelum og góður matsalur þar sem boðið
er upp á hádegishlaðborð og opið er á kvöldin og um helgar frá
verið hér með hópa, hefur það ekki verið hægt fyrr en nú, en
með maíbyrjun munum við hafa opið öll kvöld og um helgar."
Nýr salur Þar sem hótelið er vinsælt hjá fyrirtækjum sem
gjarnan senda hópa til íslands, annaðhvort á ráðstefnur eða
fundi, hefur skapast þörf fyrir fleiri sali á hótelinu. Því var
gerður upp salur á 6. hæð þar sem hægt er að vera með allt
að 80 manns í einu. Salurinn verður einnig leigður út til
ýmissa veisluhalda og er kærkomin viðbót við sali borgar-
innar sem stundum eru allt of fáir.
Fjölbreytt Starf Jóhann segir starf hótelstjóra vera fjölbreytt
og skemmtilegt en um leið umfangsmikið. „Ég veit aldrei hvað
mætir mér þegar ég kem hingað að morgni," segir hann. „Hér
fara tugir þúsunda manns í gegn árlega og því margar óskir
sem þarf að uppfylla. Hver gestur er sérstakur og við reynum
að gera okkar besta til að hveijum og einum líði vel meðan á
dvölinni stendur. Hér erum við með á annan tug fastra starfs-
manna en bætum við þegar þörf krefur og álagið eykst. Okkar
sérstaða felst ekki síst í hinu lága verði og góðri staðsetningu
en einnig því að geta boðið upp á mjög góða aðstöðu á hóteli
sem er nýuppgert og hefur allt til alls.“ S3
72