Frjáls verslun - 01.03.2004, Blaðsíða 91
Yfirlitsmynd af fyrirhuguðu Höfðatorgi og byggingum í kring um það - séð frá Sæbrautinni. Höfði er lengst til vinstri.
PUNKTURINN YFIR l-IÐ:
Höfðatorg verður viðbót
Torg eru víða vinsæl í borgum, ekki síst þar sem skjólsælt
er og hægt að setjast til að fá sér kaffisopa eða matarbita.
Neðarlega við Borgartún mun rísa eitt slíkt, umkringt
skrifstofu-, þjónustu- og verslunarhúsnæði. Torgið sjálft
verður á stærð við Austurvöll og því rúm þar fyrir ýmsar
uppákomur.Undir torginu verður bílakjallari á tveimur
hæðum sem taka mun um 800 ökutæki. Staðsetningin er í
þjónustumiðju borgarinnar, nálægt hinu sögufræga húsi
Höfða í Reykjavík og skammt frá hjarta gamla miðbæjarins.
Fullkominn staður fyrir fyrirtæki sem vilja útsýni og yfirsýn
ásamt góðum tengslum
við fólk og fyrirtæki.
Umhverfis torgið verða
4-5 hæða háar byggingar
og ein stærri bygging, 16
hæða turn sem verður
jafnframt aðalkennileiti
svæðisins. Byggingarnar
henta bæði stórum og
smáum fyrirtækjum.
Hæðirnar mynda eina
heild milli bygginga en þeim má einnig skipta upp í sjálf-
stæðar einingar. Þannig má endalaust breyta húsnæðinu og
nýta sérstaka eiginleika hverrar byggingar.
Eykt hf., sem byggir þarna, lét fara fram samkeppni á
hönnuninni og varð tillaga frá Pámari Kristmundssyni hlut-
skörpust. Með torginu er verið að horfa til þess að á Borgar-
túnssvæðinu er fjöldi fyrirtækja og þörf fyrir útivistarsvæði
og þjónustu þar sem fólk getur notið veitinga, verslað og
skoðað listsýningar. Samningar standa yfir við Olaf Elíasson
myndlistarmann varðandi hönnun á torginu sjálfu en þar
munu verða stærri lista-
verk auk þess sem gert er
ráð íyrir að minnsta kosti
einum listsýningasal í hús-
næðinu í kring.
Torgið, sem hlotið
hefur nafnið Höfðatorg, er
velkomin viðbót í Borgar-
túnið og vfst er að þar eiga
margir eftir að eiga góða
stund. H3
Höfðatorg séð frá Höfða.
91