Frjáls verslun - 01.03.2004, Blaðsíða 53
með fé sitt geymt annars staðar, t.d. í stórum félögum. Það
væri hægt að hunsa það alveg en það er miklu heiðarlegra að
borga út hlutinn á sanngjörnu verði. En við munum seint láta
frá okkur fulla stjórn. Það er alveg á hreinu. Á þeim degi
verða menn komnir í aðra vinnu eða farnir að hugsa um eitt-
hvað annað.“
- Kannski farnir að njóta peninganna?
„Það er alveg magnað í þessari ijölskyldu að peningarnir hafa
ekki freistað fyrir fimmaura. Sjávarútvegurinn er einhvers
konar lífsstíll, stolt. Okkur finnst gaman að vinna við sjávar-
útveg og eiga þetta fyrirtæki. Yið viljum hafa fyrirtækið
þannig að það sé ekki verri eign en hvert annað sparifé eða
hlutafé. En auðvitað erum við með öll okkar egg í einni körfu
og höfum verið gagnrýnd fyrir það.“
- Þið eruð ekkert hrœdd við það?
„Við gerum okkur alveg grein fyrir hættunni en það sofa allir
sæmilega. Fólki finnst bara gaman að þessu.“
fllinn UPP með „hyski“ Pétur Hafsteinn og fimm systkini
hans eru alin upp að hluta í tvískiptum bragga í Grindavík.
Fjölskyldufaðirinn, Páll Hreinn Pálsson, setti Vísi hf. á stofn
ásamt öðrum árið 1965, keypti bát og fiskverkun í Grindavík.
I vinnu hjá fyrirtækinu var mikið af Færejdngum og Húnvetn-
ingum „og maður bjó bara í verbúðinni og þess vegna ólst
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Pétur
Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, handsala
samstarfssamninginn milli félaganna.
maður upp með Færeyingum, Húnvetningum og öðru hyski,“
segir Pétur og hefur gaman af þvi að geta sagt þannig frá
tveimur fyrstu árunum í Grindavík. „Húsið var gamalt þegar
við keyptum það. Við vorum í því óbreyttu þar til fyrir fimm
árum. Það var orðið gjörsamlega handónýtt þegar við
mokuðum út úr því. Húsin voru kölluð Sævík I og Sævík II og
pabbi var kallaður Palli í Sævík. Nú er búið að endurbyggja
þessi hús og byggja á milli þeirra. Það var allt rifið innan úr
þeim. Þetta var orðið þannig að maður varð að passa sig að
hafa reiknivélina á réttum stað svo að það læki ekki ofan á
hana í rigningu. Svo var fúkkalyktin svo mikil að það var jafn-
vel verri lykt hérna uppi á skrifstofunni en niðri í fiskinum,“
segir Pétur. IB
Deutsche Post 'Qf World Net
MAIL EXPRESS LOGISTICS FINANCE
Naglar í
Skeifuna.
DHL sendir ekki bara hraðsendingar og frakt milli landa. Með jafn
glöðu geði þjótum við með sendinguna þína þvert yfir landið eða til
næsta bæjar. Þú nýtur því áreiðanlegrar þjónustu leiðandi alþjóðlegs
flutningsfyrirtækis og þæginda innanlandsflutninga. www.dhl.is
Meiri þjónusta innanlands.
Afhendum þínar sendingar um allt land.
Hringdu í þjónustudeild DHL í síma 535-1122.
VIÐ FÆRUM ÞÉR HEIMINN =
53