Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 53

Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 53
með fé sitt geymt annars staðar, t.d. í stórum félögum. Það væri hægt að hunsa það alveg en það er miklu heiðarlegra að borga út hlutinn á sanngjörnu verði. En við munum seint láta frá okkur fulla stjórn. Það er alveg á hreinu. Á þeim degi verða menn komnir í aðra vinnu eða farnir að hugsa um eitt- hvað annað.“ - Kannski farnir að njóta peninganna? „Það er alveg magnað í þessari ijölskyldu að peningarnir hafa ekki freistað fyrir fimmaura. Sjávarútvegurinn er einhvers konar lífsstíll, stolt. Okkur finnst gaman að vinna við sjávar- útveg og eiga þetta fyrirtæki. Yið viljum hafa fyrirtækið þannig að það sé ekki verri eign en hvert annað sparifé eða hlutafé. En auðvitað erum við með öll okkar egg í einni körfu og höfum verið gagnrýnd fyrir það.“ - Þið eruð ekkert hrœdd við það? „Við gerum okkur alveg grein fyrir hættunni en það sofa allir sæmilega. Fólki finnst bara gaman að þessu.“ fllinn UPP með „hyski“ Pétur Hafsteinn og fimm systkini hans eru alin upp að hluta í tvískiptum bragga í Grindavík. Fjölskyldufaðirinn, Páll Hreinn Pálsson, setti Vísi hf. á stofn ásamt öðrum árið 1965, keypti bát og fiskverkun í Grindavík. I vinnu hjá fyrirtækinu var mikið af Færejdngum og Húnvetn- ingum „og maður bjó bara í verbúðinni og þess vegna ólst Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, handsala samstarfssamninginn milli félaganna. maður upp með Færeyingum, Húnvetningum og öðru hyski,“ segir Pétur og hefur gaman af þvi að geta sagt þannig frá tveimur fyrstu árunum í Grindavík. „Húsið var gamalt þegar við keyptum það. Við vorum í því óbreyttu þar til fyrir fimm árum. Það var orðið gjörsamlega handónýtt þegar við mokuðum út úr því. Húsin voru kölluð Sævík I og Sævík II og pabbi var kallaður Palli í Sævík. Nú er búið að endurbyggja þessi hús og byggja á milli þeirra. Það var allt rifið innan úr þeim. Þetta var orðið þannig að maður varð að passa sig að hafa reiknivélina á réttum stað svo að það læki ekki ofan á hana í rigningu. Svo var fúkkalyktin svo mikil að það var jafn- vel verri lykt hérna uppi á skrifstofunni en niðri í fiskinum,“ segir Pétur. IB Deutsche Post 'Qf World Net MAIL EXPRESS LOGISTICS FINANCE Naglar í Skeifuna. DHL sendir ekki bara hraðsendingar og frakt milli landa. Með jafn glöðu geði þjótum við með sendinguna þína þvert yfir landið eða til næsta bæjar. Þú nýtur því áreiðanlegrar þjónustu leiðandi alþjóðlegs flutningsfyrirtækis og þæginda innanlandsflutninga. www.dhl.is Meiri þjónusta innanlands. Afhendum þínar sendingar um allt land. Hringdu í þjónustudeild DHL í síma 535-1122. VIÐ FÆRUM ÞÉR HEIMINN = 53

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.