Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2004, Blaðsíða 18

Frjáls verslun - 01.03.2004, Blaðsíða 18
FORSIÐUGREIN - FAKEPPNI OG HRINGAMYNDUN LOG GEGN HRINGAMYNDUN Mega sumir Í\/ -*>. .7. \' ' en aðrir ekki? Þeir eru nefndir auðmenn íslands og þeir eru farnir að fá opin bréf frá rithöfundum. Þeir eru uppnefndir „hringormar" og viðskiptalífið er í hálfkæringi sagt vera ein stór „hringavitleysa" þar sem „The Lords of the Rings“ stjórna öllu. En hvað er auðhringur og hveijir eru auðmenn Islands? Auðhringur er samkvæmt hagfræðinni .Jjársterk sam- steypa félaga". Auðhringarnir eru því viðskiptablokkirnar margfrægu og auðmennirnir eru foringjar þeirra sem mjög hafa látið tíl sín taka í viðskiptalífinu og verið afkastamiklir. Tvær valdið mestri Skelfingu Tvær samsteypur hafa verið Jyrirferðarmestar og valdið mestri skelfingu að því er virðist, Baugs-veldið og Samson. Foringjar Baugs eru þeir Jón Asgeir Jóhannesson og Jóhannes Jónsson. Foringjar Samsonar eru þeir Björgólfur Thor Björgólfsson, Björgólfur Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson. Svo atkvæðamiklir hafa þessir menn þótt að þegar Oddaflug, félag þeirra Jóns Helga Guðmundssonar í Byko og Hannesar Smárasonar, eignaðist 38,5% í Flugleiðum í lok janúar var því fagnað í leiðara Morgunblaðsins að hvorki Baugur né Samson hefðu komið að þessu kaupum. „Ber að fagna því að þær tvær viðskiptasamsteypur, sem mest hafa látið að sér kveða síðustu mánuði, koma ekki við sögu í þessum viðskiptum," sagði í leiðaranum og var sagt að eignarhaldið í íslensku viðskiptalífi væri frekar að breikka með kaupum Byko-ijölskyldunnar í Flugleiðum. „Með kaupum þeirra á stórum hlut í Flugleiðum hefur skapast meira jafnvægi en ekki minna á markaðnum hér.“ Þessi orð í leiðara Morgunblaðsins fóru fyrir bijóstið á mörgum sem sögðu að þetta hefði borið keim af því „að sumir í þjóðfélaginu mættu eiga fyrirtæki en aðrir ekki“ og að þannig kæmu orð forsætísráð- herra raunar einnig fyrir sjónir. Yissulega hafa bæði Morgunblaðið og Davíð varað fyrr á árum við of mikilli samþjöppun eignarhalds - en þó aldrei sem undanfarna mánuði. völdin í viðskiptalífinu og þjóðfélaginu og skert frelsi okkar hinna tíl orðs og æðis? Margir eru þeirra skoðunar. En hvers konar völd erum við að ræða um og frá hveijum hafa þeir tekið þessi völd? Ráðherrum, þingmönnum, dómstólum, embættismönnum, eftírlitsstofnunum eða fyrrverandi stórum hluthöfum sem hafa selt fyrirtæki sín? Þegar svona er spurt eru svörin yfirleitt ekki á reiðum höndum. Því vaknar sá spurning hvort allt þetta tal um völd sé ofspiluð plata. Fjármagni fylgja völd. Það er engin ný bóla í kapítalísku kerfi og ættí ekki að koma neinum á óvart. Fjársterkur einstaklingur stendur betur að vígi en fátæklingur við stofnun fyrirtækis. I því felst ákveðið vald gagnvart bönkum og öðrum. Þetta er þó frekar óbeint vald. Beint vald fjármagnsins er það vald sem hluthafar hafa í samræmi við eign sína innan við- komandi fyrirtækis. Hafa auðmennirnir tekið völdin? En hafa auðmennirnir og samsteypur þeirra tekið Með fleiri viðskiptablokkum heftir dregið úr völdum og áhriftun hverrar fyrir sig. Völdin hafa riðlast Innan þessara auð- hringa eru „tugþúsundir“ venju- legra Islendinga. Þeir eru þar í farþegasætinu sem hluthafar. Hver er frelsisskerðingin? En hver er þá frelsisskerðingin sem verið er að tala um? Er það að komast ekki léttilega inn á hvaða markað sem er? Fijáls samkeppni er talin ríkja á mörkuðum á meðan engar hindranir eru í vegi þvi að menn reyni fyrir sér - á meðan aðgangurinn er ftjáls. Jafnvel þó þar séu tveir til þrír stórir og sterkir fyrir. Oft er sagt um frjálsan markað að ef einhver nýtur lagalegrar verndar gegn samkeppni þá skapist fyrst veruleg hætta á einokun. Það er eðlilegt að stórt og rótgróið fyrirtæki, sem hefur byggt sig upp af dugnaði og elju- semi í áratugi, hafi talsvert forskot. Það hefur alltaf verið erfitt að komast inn á nýjan markað nema þar sé „laust rými“ vegna lélegrar þjónustu og áhuga- leysis þess sem er stór og ráðandi á mark- aðnum og er orðinn sljór vegna þess að hann hefur það of gott. Þetta sama á við um vinnumarkaðinn. Það er erfitt að komast í góðar stöður vegna þeirra sem þar eru fyrir og gefa ekkert eftir. 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.