Frjáls verslun - 01.03.2004, Blaðsíða 55
Perfcct
Tackk
Áuöxtun 2003
Hluti af Sérbankaþjónustu
Landsbankans.
Ingi Karl Ingólfssnn, fjármála-
ráðgjafi Kristján Gunnar Ualdi-
marsson, hdl., forstöðumaður
Sérbankaþjónustunnar, Snorri G.
Steinsson, fjármálaráðgjafi og
Kjartan Þórólfsson, sjóðsstjóri.
■ViðmiSunarvísitölur
■Virk stýring
Hér er Safn 1 áhættuminnst og Safn 6 áhættumest. Myndin sýnir að almennt er virk
stýring að gefa hærri ávöxtun en viðmiðunarvísitölur.
LANDSBANKA ÍSLANDS
samband við viðskiptavin þegar sérfræðingar Sérbankaþjónustu sjá
tækifæri á markaði og viðskiptavinur tekur þá sjálfur ákvörðun um
það hvað hann vill gera. Oft á tíðum hefur viðskiptavinur þó frum-
kvæði að slíkum fjárfestingum. Ráðgjafarsafn hentar þeim betur sem
fylgjast vel með markaðinum og hafa ákveðnar skoðanir á hinum
ýmsu fjárfestingum.
Sérbankaþjónustan í samvinnu við Landsbanka
Luxembourg
Sérbankaþjónustan er í samstarfi við Landsbanka Luxembourg S.A.
sem er sjálfstæður lögaðili með bankaleyfi í Lúxemborg og er dóttur-
félag Landsbanka íslands hf. Lúxemborg er ein helsta miðstöð fjár-
málafyrirtækja á sviði sérbankaþjónustu í Evrópu m.a. vegna mikillar
bankaleyndar, hagstæðs skattaumhverfis, landfræðilegrar staðsetn-
ingar og stöðugs stjórnmálaástands.
Landsbanki Luxembourg S.A. býðurvíðtæka heildarþjónustu í fjár-
málum einstaklinga þar sem hver viðskiptavinur fær sinn eigin fjár-
málaráðgjafa sem er honum innan handar við mat á fjárfestingar-
möguleikum og sér jafnframt um verðbréfasöfn hans.
Þjónustuþættir sérbankaþjónustu Landsbanka Luxembourg eru
meðal annars: eignastýring, fjárvarsla, gjaldeyris- og verðbréfavið-
skipti, innlánsreikningar, greiðslukort, milliganga um stofnun og
tekstur eignarhaldsfélaga, lögfræðiþjónusta og önnur sérfræðiþjón-
usta.
Skattaráðgjöf er hluti af Sérbankaþjónustu
Þar sem skattlagning tekna og eigna hefur áhrif á ávöxtun fjármuna,
auk þess sem skynsamlegt er að sýna fyrirhyggju í skattamálum, er
skattaráðgjöf hluti af Sérbankaþjónustu Landsbankans.
Sem dæmi má nefna að mismunandi reglur gilda um skattlagningu
söluhagnaðar eftir því um hvaða eignir er að ræða, t.d. fyrnanlegar
eignir eða hlutabréf og eftir því hver skattaðilinn er, þ.e. einstaklingur
utan rekstrar, einstaklingur í rekstri, einkahlutafélag eða sameignar-
félag. Einnig gilda sérstakar reglur um frestun eða dreifingu söluhagn-
aðar sem vert er að skoða. Aðilar geta lágmarkað skattlagningu innan
marka skattalaga með réttri ráðgjöf í þessu tilliti.
Skattaráðgjöf vegna fjárfestinga erlendis
Mikilvægt er að huga vel að skattlagningu áður en ráðist er í fjárfest-
ingar erlendis og getur það skipt miklu að rétt sé að verki staðið með
tilliti til eignarhaldsfélaga og staðsetningu þeirra, auk þess sem
kanna þarf hvort í gildi séu tvísköttunarsamningar og hvert efni
þeirra er. Slík ráðgjöf er hluti af starfsemi Sérbankaþjónustu Lands-
bankans.
Trúnaður
Viðskiptavinir Sérbankaþjónustunnar njóta hámarks trúnaðar um við-
skipti sín, og aðrir en starfsmenn Sérbankaþjónustu hafa ekki að-
gang að viðskiptum Sérbankaþjónustunnar.
Viðskipti við Sérbankaþjónustuna
Sérbankaþjónusta Landsbankans er í Hafnarstræti 5, 3. hæð. Nánari upp-
lýsingar eru veittar i síma 410-7140 og á faxi 410-3001. Einnig er hægt
að senda tölvupóst á netfangið: serbankathjonusta@landsbanki.is 03
55
□
Landsbankinn
Banki allra landsmanna