Frjáls verslun - 01.03.2004, Blaðsíða 94
VINUMFJOLLUN SIGMARR B.
AiLSACE
"AVION U,N\< K fONI'K^1-'-1
Elsassvínin eru margbrotin en þó aðgengileg, - þau eru góð með bragðmiklum mat og frábær ein sér, - sannkölluð sumarvín.
Mynd: Geir Ólafsson
Elsass
- Mekka sælkera
Það sem gerir Elsass svo áhugaverðan áningarstað er hve héraðið er fallegt og forvitni-
legt Höfuðborg þess er Strassborg, stundum kölluð höfuðborg Evrópu
Eftír Sigmar B. Hauksson Myndir: Geir Ólafsson
Nú er sá tími að ganga í garð að margir eru farnir að
huga að sumarfríum sínum. Fyrir sælkera og unnendur
góðra vína er tilvalið að fara til Elsass (Alsace), héraðs
í Frakklandi. Elsass er í norðausturhorni Frakklands, við
landamæri Þýskalands. Sterkra þýskra áhrifa gætir í
héraðinu, enda var það hluti Þýskalands á árunum 1870 -
1918. Þýskra áhrifa gætir nokkuð í byggingar- og matar-
gerðarlist Elsassbúa og svo í vínræktinni. Segja má að Elsass
sé á vinstri bakka Rínarfljóts og rækta Elsassbúar sömu vín-
þrúgur og gert er í Rínarhéruðum Þýskalands. En þrátt fyrir
töluverð þýsk áhrif í héraðinu er það þó svo sannarlega
franskt. Elsassbúar sjálfir benda hins vegar á það að menning
héraðsins sé hvorki þýsk né frönsk, - í aldanna rás hafi þróast
lífshættir og menning þar sem gætir franskra og þýskra
áhrifa og útkoman sé sjálfstæður menningarheimur, - nefni-
lega Elsass og elsösk menning.
Route du Vin Það sem gerir Elsass svo áhugaverðan
áningarstað er hve héraðið er fallegt og forvitnilegt. Höfuð-
borg þess er Strassborg, stundum kölluð höfuðborg Evrópu
því að Evrópuþingið kemur þar saman og Evrópuráðið hefur
þar aðsetur. I hlíðum Vosgesfjalla eru svo litlu vínbæirnir
94