Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 19

Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 19
Lög gegn hringamyndun 1. HVERS KONAR LÖG ætla menn að setja? Á að banna manni sem á fasteignafélög eða margar verslanir að eiga flugfélag? 2. ÆHA MF.NN að setja lög sem kveða á um að hvert fyrirtæki megi aðeins vera með 25% markaðshlutdeild? Eða verður miðað við 50% hlutdeild? 3. Á AÐ BANNA fyrirtækjum að kaupa önnur fyrirtæki sem leiðir til þess að þau fara yfir 50% markið. Á að banna þeim að vaxa innan frá yfir þetta mark? 4. VERÐUR EINHVERN TÍMA hægt að útrýma þeirri reglu hér á landi að yfirleitt séu tvö til þijú stórfyrirtæki á markaði og síðan nokkur smá? 5. STENST SÚ RÖKSEMDARFÆRSLA að frelsið hafi á skömmum tíma breyst í ófrelsi, að samkeppnin hafi breyst í einokun, að einokunin komi niður á öllum almenningi? Ergó: Það verður að krukka í markaðsöflin og ákveða hvað hver og einn megi vera stór á markaði og eiga í óskyldum rekstri. 6. ÞARF LÖG OG REGLUR um allt? Geta ekki reglur, sem hindra ólöglegt samráð, einokun eða hringa- myndun, gert illt verra? Að þær hefti framgang við- skiptalífsins í stað þess að auka samkeppni eins og þeim er ætlað? 7. MUNIÐAÐaðgangstakmarkaniraðmörkuðumþrífast oftast í skjóli stjórnvalda og lögverndar. 8. HVAÐA VÖLD ERU ÞAÐ nákvæmlega sem auðmenn íslands hafa fengið undir yfirskriftinni að ,fjármagnið hafi tekið völdin“? 9. ER VERIÐ AÐ rugla umræðunni um fákeppni og hringamyndun saman við umræður um siðferði í viðskiptum, eins og ofurlaun forstjóra, ábyrgð stjórnar- manna, ákefð bankanna sem ijárfesta, hriplekra kína- múra bankanna, kaupréttarkerfi forstjóra, Enron- skandala, auðsöfnun nokkurra og fátækt sumra? 10. HVAÐA ANNAÐ KERFI viljum við setja upp en það markaðskerfi sem gerir þá hæfustu og duglegustu oft mjög stóra á markaði? Eru það ekki viðskiptavinirnir sem gera fyrirtækin stór? ffl 19

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.