Frjáls verslun - 01.03.2004, Page 21
„í tísku að tala illa
um viðskiptalítið"
Nýlega var haldin ráðstefha Verslunarráðs vegna nýrra
leiðbeiningar Verslunarráðs og Kauphallarinnar um
stjórnarhætti í fýrirtækjum. Olafur B. Thors stýrði pall-
borðsumræðum og þar sagði hann að viðskiptalífið hefði átt
undir högg að sækja gagnvart almenningi og „í tísku væri að
tala illa um viðskiptalífið".
En það er ekki bara í tísku af hálfu almennings að tala illa um
viðskiptalifið heldur hefur það einnig færst mjög í vöxt hjá
sljórnmálamönnum. Og ofiar en ekki hefur sú umræða snúist
um siðferði - m.a. í tengslum við ofurlaun forstjóra - fremur en
fákeppni og hringamyndun.
Davíð drjúgur í gagnrýni sinni Davið Oddsson forsætisráð-
herra hefur verið dijúgur í gagnrýni sinni. En segja má að
flestir þingmenn á Alþingi hafa lýst yfir áhyggjum af ofurvaldi
viðskiptablokkanna og samþjöppun í efnahagslífinu. Það er
athyglisvert að þetta gerist á sama tíma og ffelsisvindar hafa
leikið um viðskiptalífið og flestir hafa haldið að menn tækju
þeim vindum fegins hendi.
Svo virðist sem menn hafi búið sér til eftirfarandi rök fýrir
lögum gegn hringamyndun: Að frelsið hafi á skömmum tíma
breyst í ófrelsi. Að samkeppnin hafi breyst í einokun. Að ein-
okunin komi niður á öllum almenningi. Ergó: Það verður að
krukka í markaðsöflin og ákveða hvað hver og einn megi vera
stór á markaði og eiga í óskyldum rekstri.
Ekhi Öfundsverð nefnd Þeir eru ekki öfundsverðir sem sitja í
nefndinni sem Valgerður Sverrisdóttir, viðskipta- og iðnaðar-
ráðherra, hefur skipað um „stefnumótun íslensks viðskiptaum-
hverfis" - hvað sem sú stefnumótun merkir. I daglegu tali er
þetta nefndin sem undirbýr lög gegn hringamyndun og veldi
viðskiptablokkanna. Formaður hennar er Gylfi Magnússon,
dósent við Háskóla Islands. Nefndinni er ætiað að fjalla um það
hvernig bregðast megi við aukinni samþjöppun og með hvaða
hætti skuli þróa reglur þannig að viðskiptalífið sé „skilvirkt og
njóti trausts". Nefndinni er ætlað að ljúka störfum eigi síðar en
1. september næstkomandi.
Hvað kemur út úr nefndinni? Fróðlegt verður að sjá hvað
kemur út úr nefndinni - og hvað í raun getur komið út úr henni.
A að hefla nornaveiðar, beita sektarheimildum og leggja til að
fýrirtækjum verði skipt upp? Á að leggja til að sett verði upp
kvótakerfi, höft og hömlur í öllum greinum atvinnulífsins og
markaðshlutdeild ákveðin? Hvað mega sömu menn eiga í
mörgum fýrirtækjum? Mega þeir bara starfa í ákveðnum
atvinnugreinum? Verður lagt til að fýrirtækjum með 40% til 50%
markaðshlutdeild verði skipt upp?
Þær eru margar spurningarnar sem nefndin mun spyija
sig. Það verður erfitt verk að skrifa þessa „hringadrottins-
Ruglingur
félagsmálaráðherra?
w
Arni Magnússon félagsmálaráðherra sagði á Iðnþingi í
mars: „Er það eðlilegt að einstakir viðskiptabankar veiji
mestum kröftum sínum og fjármunum, jafhvel með stórkost-
legum erlendum lántökum, í að brytja niður lýrirtæki í
íslensku viðskiptalífi, til hagnaðar fýrir sjálfan sig? Er það
tilgangur þeirra?“
Engum duldist að þarna var Árni að skjóta á Lands-
bankann og félagana í Samson fýrir að skipta upp dótturfélagi
Eimskips, Brimi, og selja helstu eignir þess, UA, HB, Skag-
strending og Boyd line. Árni var að vísu spurður um hvaða
íýrirtæki hann ætti við. Hann svaraði þvi ekki og sagðist telja
að best væri að ræða almennt um þetta.
En takið eftir. I sömu ræðu gagnrýndi Árni að verslunar-
og þjónustufýrirtæki hefðu stækkað gífurlega og að völd
þeirra gagnvart smærri fýrirtækjum, ekki síst smærri fram-
leiðslufýrirtækjum, væru mikil. Hann sagði þræðina liggja
svo víða að helst minnti á „vef risavaxinnar köngulóar“. „Þessi
fýrirtæki geta í mörgum tilvikum ráðið því hveijir fái lifað og
hveijir skuli deyja,“ sagði Árni og átti augljóslega við Baug.
Hér vekur það athygli að Árni gagnrýnir að stóru fyrirtæki
skuli skipt upp, þ.e. „brytjað niður“ og einingarnar seldar til
smærri fyrirtækja, um leið og hann gagnrýnir að fyrirtæki
séu orðin svo stór að líkja megi þeim við risavaxinn
köngulóarvef.
Hefði Árni ekki átt að vera feginn þvi að fýrirtæki væri
„brytjað niður“ fýrst hann hefur áhyggjur af of stórum fýrir-
tækjum? Það verður fróðlegt að fylgjast með handaganginum
í öskjunni þegar lögin gegn hringamyndun verða sett og
hafist verður handa við „að brytja niður fyrirtæki“ af fullum
krafti.
Árni sagði ennfremur að ekki „valdi allir því hlutverki sem
þeim hefur verið falið eða þeir hafa tekið að sér. Það eru
merki um hringamyndun í viðskiptalífinu, og umsvif ein-
stakra aðila í atvinnulífinu eru að mínu mati að minnsta kosti
á mörkum þess að standast siðferðilega mælikvarða". [£]
21