Frjáls verslun - 01.03.2004, Síða 22
FORSÍÐUGREIN - FÁKEPPNI OG HRINGAMYNDUN
SJÖ SAMSTEYPUR:
ÍSLENSKII
sögu“ og finna töfralausnir til að „koma á virkri samkeppni"
með handafli og þróa reglur svo viðskiptalífið „njóti trausts“.
Þannig að aftur komist á frelsi fyrir alla á Islandi en ekki bara
fyrir fáa útvalda?!
Hafa bær ekki staðið Sig í Stykkinu? Tvær stofnanir hafa
eftirlit með viðskiptalífinu og eiga að sjá til þess að virk sam-
keppni ríki og að menn hagi sér eftir „settum, traustum
reglum". Þetta eru Samkeppnisstofnun og Fjármálaeftirlitið.
Hvers vegna að setja sérstök lög gegn hringamyndun þegar
þessar stofnanir eru til staðar? Hafa þær ekki staðið sig í
stykkinu?
Oft er umræða um viðskiptalífið og völd óljós og ber keim
af því að málum sé ruglað saman. Er t.d. verið að rugla
fákeppni og hringamyndun saman við fyrirferð bankanna
sem sókndjarfra fjárfesta sem kaupa í hverju fyrirtækinu af
öðru? Er verið að rugla fákeppni saman við margra mánaða
umræðu um að kínamúrar bankanna séu hriplekir?
Hjálmar Árnason: 20% markaðshlutdeild Hjálmar Árnason
alþingismaður skrifaði á dögunum grein í Morgunblaðið um
fákeppnina á Islandi. Þar sagði hann: „Matur er eitthvað sem
allir verða að kaupa. Fyrir um 15 árum voru nokkuð margir
aðilar á þessum markaði. Samkeppni þeirra í millum var hörð
og kom neytendum til góða...I dag eru aðeins örfáir kepp-
endur eftir á íslenskum matvörumarkaði. Og einn þeirra
drottnar yfir meira en helmingnum...í matvörunni hafa þessir
aðilar því kjör og líf fólksins í landinu í hendi sér. Þeir
mokgræða enda samkeppnin engin...Við hljótum að skoða
hvort ekki sé ástæða til að endurskoða samkeppnislög með
það í huga að enginn verði stærri en 20 til 25% á markaði."
Síðan leggur Hjálmar fram þá spurningu hvort ekki sé
kominn tími til að samvinnufélögin verði endurvakin.
Erlendir heildsalar „áttu ísland" Þetta er afar athyglisverð
niðurstaða hjá þingmanninum og ljóst að mikið blóðbað
bíður á matvörumarkaðnum. En yfirleitt hefur umræðan
gengið út á að matvöruverð hafi lækkað verulega að raun-
virði frá árum áður vegna hagræðingar í innkaupum mat-
vöruverslana.
Fyrir um fimmtán árum var það hluti af vöruverði í
landinu að heildsalar í Danmörku og annars staðar á Norður-
löndunum „áttu“ ísland og fengu þóknun af viðskiptum til
landsins. Þetta kerfi hefur verið brotið á bak aftur á síðustu
árum af stórmörkuðunum sem öðrum verslunum.
Almennt er talið að mismunur á vöruverði á Islandi og í
öðrum löndum hafi jafnast verulega á síðasta áratug þó að
það verði ævinlega hærra á Islandi vegna flutningskostnaðar
til landsins. Þetta hefur meðal annars sýnt sig í því að áður
þekktar „innkaupaferðir almennings til írlands og Skotlands"
þykja ekki borga sig lengur.
Vandi þingmanna sem annarra við að setja lög gegn
hringamyndun og fákeppni er sá að það eru neytendur sem
gera fyrirtæki stór. Það eru neytendur sem ákveða stærð
fyrirtækja. 55
r
Islensku auðhringarnir eru sjö talsins, að mati Fijálsrar
verslunar. Þetta eru einfaldlega viðskiptablokkirnar
margnefndu. Samsonarhópurinn, Björgólfur Guðmundsson,
Björgólfur Thor og Magnús Þorsteinsson, er þeirra ríkust.
Þetta eru eignatengslin: Samson-Pharmaco-Landsbanki-
Burðarás-Flugfélagið Atlanta-Edda útgáfa og áfram mætti
telja. Veldi Baugs teygir anga sína víða hérlendis. Hagar eru
að stærstum hluta í eigu Baugs, en Hagar eru með um 50%
af matvörumarkaðnum. Baugur leggur núna mesta áherslu
á Bretland. Jón Helgi Guðmundsson í Byko og Hannes
Smárason teljast núna sem viðskiptablokk eftir kaupin á ráð-
andi hlut í Flugleiðum.
Þeir Olafur Olafsson í Samskipum og Finnur Ingólfsson,
forstjóri VÍS, eru foringjar S-hópsins sem keypti Búnaðar-
bankann og yfirtók nýlega SÍF. Samherji og Kaldbakur
HÆTTA Á FERÐUM:
Viðskiptaveldi
hyggð upp
með lánsfé
Viðskiptablokkirnar eru misjafnlega ríkar og skuldugar.
Ljóst er að útþensla margra og yfirtökur á fyrirtækjum
byggjast á lánsfé. Nú ber svo við að bankarnir og viðskipta-
lífið eru illa undir það búin ef gengi krónunnar fellur. I grein
hér annars staðar í blaðinu bendir Gylfi Magnússon, dósent
við Háskóla íslands, á að erlendar skuldir hafi verið 36% af
vergri landsframleiðslu árið 1980 en í lok síðasta árs hafi
hlutfallið verið komið í 150%. Gylfi er raunar formaður
nefndar viðskiptaráðherra sem er að skoða hringamyndun
og samþjöppun valds í viðskiptalífinu. Verði viðskiptalífið og
viðskiptablokkirnar fyrir skelli vegna gengisfalls krónunnar
sem aftur leiðir til ljöldauppsagna verður fróðlegt að fylgjast
með umræðunni á Alþingi og hversu harkalega eigi að hjóla
í viðskiptasamsteypurnar. Þá leysist kannski valdaumræðan
af sjálfu sér. 55
22