Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 33

Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 33
 Páll Freysteinsson, framkvæmdastjóri Hugar. flllir íslenskir bankar nota hrað- bankahugbúnað frá Hug. I dag eru 450 fyrirtæki á Islandi að nota tímaskráningarkerfið Bakvörð. Eftir 18 ára starfsemi í Kópavogi flutti hugbúnaðarfyrirtækið Hugur nú nýuerið til Reykjauíkur, nánar tiltekið í glæsilegt húsnæði að Grjóthálsi 5 sem í daglegu tali er kallað fissurarhúsið. Þessi flutn- ingur kemur í kjölfar kaupa Kögunar hf. á Hug, en sem kunnugt er keypti Kögun hf. fyrirtækið í árslok 2003. Sterk staða „Það leggst vel í okkur að vera orðin hluti af Kögunarfjölskyldunni," segir Páll Freysteinsson, framkvæmdastjóri Hugar. „Eftir erfiðan rekstur nokkur síðustu ár varð viðsnúningur á rekstri Hugar árið 2003 og er fyrirtækið nú rekið með hagnaði. Þennan árangur má helst skýra með bættri verk- efnastöðu á heimamarkaði, góðum árangri erlendis svo og innri endur- skipulagningu. Með kaupum Kögunar styrkist staða Hugar enn frekar og það eru bjartir tímar framundan." Hjá Hug starfa nú um 80 manns og er Hugur með starfsstöðvar víðar en í Reykjavík. Á Akureyri starfa 7 manns, einnig er starfsstöð í Vestmannaeyjum og stefnt er að opnun nýrrar stöðvar á Austurlandi á árinu. Meðal stærstu viðskiptavina Hugar eru fyrirtæki á borð við Delta, Pharmamed, Samskip, P. Samúelsson, Ossur, □Igerð Egils Skallagrímssonar, Vífilfell, Nóa-Síríus, Norðlenska kjötborðið, Símann, ásamt öllum olíufélögunum, álverunum og bönkunum. Rótgrónar vörur „Hugur hefur í rúmlega tvo áratugi verið traustur samstarfsaðili íslenskra fyrirtækja. Vörur okkar eru annars vegar viðskiptalausnir þar sem við bjóðum bæði okkar eigin lausnir í tímaskráningum og viðskiptahugbúnaði og hins vegar vörur frá Microsoft Business Solutions," segir Páll. Tímaskráningarkerfið Bakvörður er ein elsta lausn Hugar og í dag eru um 450 fyrirtæki á íslandi að nota kerfið. Viðskiptahugbúnaðurinn Ópusallt er einnig þróaður af Hug. Það eru sjálfsagt margir sem kannast við þann hugbúnað enda nota um 600 aðilar Ópusallt. Vörustjórnun og vöruhúsalausnir „Við sérhæfum okkur í vörustjórnun og vöruhúsalausnum. Hugur hefur mikla reynslu af þróun vörustjórnunarlausna sem falla að Axapta og XAL frá Microsoft Business Solutions," segir Páll. „Einn mikilvægasti þátturinn í vörustjórnunarkeðjunni er vöruhúsið sjálft og þar hefur Hugur þróað hugbúnaðarlausn sem ber heitið OWAS - vöruhúsakerfi. OWAS tekur á öllum helstu verkferlum í vöruhúsi og er upplýsingatæknin nýtt til hins ýtrasta til að ná fram hagræðingu. Ávinningur af lausninni er margþættur en aðallega sá að með fullkominni yfirsýn og rekjanleika er hægt að halda fjárbindingu í birgðum í lágmarki.'1 Fjölbreyttar sérlausnir Jafnframt er stór hluti af starfsemi Hugar útfærsla sérlausna af ýmsu tagi, allt frá smáum lausnum upp í viðamikil kerfi fyrir fjármála- og tryggingafyrirtæki. „Hjá okkur er um 20 manna hópur sem eingöngu vinnur að slíkum verkefnum," segir Páll. „Nýverið gekk Hugur frá sam- starfssamningi við Edlund A/S, danskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum fyrir tryggingafélög og lífeyrissjóði, þess efnis að Hugur selji og þjónusti lausnir Edlund á íslenskum markaði." Nú þegar er hafin fyrsta innleiðing á lausninni hjá íslensku tryggingafélagi. Til gamans má svo nefna að mest notaða lausn fyrirtækisins er án efa hraðbankalausn Hugar en hún keyrir á öllum hraðbönkum í landinu. Má því ætla að flestir landsmenn noti reglulega hugbúnað frá Hug. Bætum samkeppnisstöðu viðskiptavina „Þjónusta okkar og lausnir miðast ávallt við þarfir viðskiptavina og við leggjum höfuðáherslu á að kynnast þörfum þeirra svo að allt gangi vel upp og sem bestur árangur náist. Markmið okkar er að flétta saman lausnir og umfangsmikla viðskipta- og tækniþekkingu til að bæta sam- keppnisstöðu viðskiptavina okkar," segir Páll. „Við sjáum nú sífellt fleiri viðskiptavini horfa til aukinnar arðsemi af fjárfestingu í lausnum okkar. Þegar lagt er í fjárfestingu til þess að auka framleiðni og bæta sam- keppnisstöðu er mikilvægt að skilgreina hver endanlegur ávinningur á að vera og meta út frá því kostnað við innleiðingu lausna." Erlendir markaðir Hugur hefur vakið áhuga erlendra aðila á vörustjórnunar- og tímaskrán- ingalausnum sínum og eru fjölmargir erlendir samstarfsaðilar Hugar að kynna og selja vörur fyrirtækisins. Nýjasta dæmið um það er innleiðing á OWAS - vöruhúsakerfi hjá framleiðslufyrirtækinu Tissco í Flórída. „Við höfum flutt talsvert út af hugbúnaði okkar. Aðilar í Oanmörku, Noregi, Bretlandi, Ástralíu, Bandaríkjunum og fleiri löndum hafa valið hugbúnað okkar til sölu á sínum mörkuðum. Við sjáum þennan þátt starf- seminnar vaxa og dafna í framtíðinni," segir Páll. Mikilvægi hugbúnaðariðnaðar „(slenski upplýsingaiðnaðurinn hefur alla burði til að stórauka verðmæta- sköpun í landinu, það er mjög mikilvægt að stjórnvöld og ráðamenn þjóð- arinnar fari að átta sig á þessum tækifærum," segir Páll. „Nágrannalönd okkar hafa náð miklum árangri á þessu sviði og við þurfum að taka okkur verulega á til að dragast ekki aftur úr þessum þjóðum. Það er hug- búnaðarfyrirtækjum og þeirra vörum að þakka hversu mörg fyrirtæki hafa getað straumlínulagað rekstur sinn og náð miklum árangri í hagræðingu. En enn er margt ógert í þeim efnum." H!1 HUGUR Grjótháls 5-110 Reykjavík Sími 540 3000 • Símbréf 540 3001 KYNNING 33

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.