Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 36

Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 36
ÚTTEKT KEA GÖMLU KEA FYRIRTÆKIN HÚTEL KEA í i a. ■» vi.ipfc j * ■ jf® ii' ■ ] t ; Hótel Kea. Kea er bæði búið að selja reksturinn og fast- eignina. Kea hætti að reka Hótel Kea 31. desember 1997 og Fosshótel tók við rekstrinum. Nú reka hótelið þeir sömu og eiga veit- ingastaðinn Greifann á Akureyri og hafa þeir einnig keypt fasteignina. BYGGINGAVÖRUDEILD Byggingavörudeild Kea sem sameinaðist Húsasmiðjunni. Byggingavörudeild Kea var seld Húsasmiðjunni árið 1999. Kea fékk hlutabréf í Húsasmiðjunni og þau voru seld árið 2000. APÚTEK I I I II M i i i i Apótekarinn, áður Stjörnuapótek, í göngugötunni á Akur- eyri. Stjörnuapótek rann inn í keðjuna Lyf og heilsu og Kea fékk helmingshlut í keðjunni sem var seldur haustið 2003. MATVÖRUUERSLANIR Matvöruverslanir Kea voru 10 -12 á Akureyri þegar mest var og svo í bæjunum út með Eyjafirði. Þessi starfsemi samein- aðist Kaupfélagi Þingeyinga undir nafninu Matbær. Matbær sameinaðist svo Samkaupum, þ.e.a.s. verslunum Kaupfélags Suðurnesja. Við sameininguna breyttist nafnið í Samkaup. Kea og síðar Kaldbakur átti helming í Samkaupum en sá hlutur var seldur sl. haust. : ___________________ _________________________— Eini starfsmaður Kea Andri Teitsson, kaupfélagsstjóri Kea. Hlutverk kaupfélags- stjórans og staða hans í samfélaginu hefur breyst gríðar- lega á undanförnum árum en kaupfélagsstjórinn var hér áður fyrr einn af þremur valdamestu mönnum samfélagsins fyrir norðan. Hvað gerir kaupfélagsstjórinn í dag? „Hann opnar póstinn, svarar í símann og passar peningana." Myndir: Geir Ólafsson inn og vísar þar til umræðunnar um Spron í fyrra. ,Að sumu leyti er Kea eins og íjárfestingafélag með mikla peninga í verðbréfum. Að öðru leyti er það eins og góðgerðafélag. Menningar- og viðurkenningarsjóður okkar úthlutar um 60 styrkjum á ári, 12 milljónum króna. Þar fyrir utan veitum við 10-12 milljónir í alls kyns styrki þannig að samtals fara um 25 milljónir á þessu ári til alls kyns menningarmála og góð- gerðamála á félagssvæðinu sem er Eyjaijörður og Þingeyjar- sýslur." Harðnaði á dalnum Kea hefur gengið í gegnum griðar- legar breytingar á síðasta áratug. Á tíunda áratugnum sáu menn að það gekk ekki nógu vel að vera með svona stórt kaupfélag í alls konar starfsemi. Frá 1996-1997 jukust 36

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.