Morgunn


Morgunn - 01.06.1966, Side 11

Morgunn - 01.06.1966, Side 11
MORGUNN 5 halda sér síðan heima 33 daga. Hún skal ekkert heilagt snerta, og eigi inn í helgidóminn koma, fyrr en hreinsunar- dagar hennar eru úti. En ef hún fæðir meybarn, þá skal hún vera óhrein í hálfan mánuð og halda sér heima í sextíu daga. En þegar hreinsunardagar hennar eru úti, skal hún færa prestinum sauðkind veturgamla að brennifórn, og skal hann bera fórnina fram fyrir Jahve og friðþægja fyrir hana, og er hún þá fyrst hrein af blóðlátum sínum. Nú spyr ég: Dettur nokkrum lifandi manni í gervallri kristninni í hug að fara eftir boðorði eins og þessu eða öðr- um líkum úr Móselögum eða telja þau gildandi enn þann dag í dag? Og hví þá að halda hinni kreddunni frekar til streitu? Það var venja við lagasetningar hjá frumstæðum þjóðum að eigna guðunum lögin til þess að meiri líkur væm fyrir, að menn færu eftir þeim. En öll þessi glórulausa tilvitnun í Biblí- una þvers og langs, gerð af engum skilningi, var úrelt þegar í byrjun kristindómsins. Móselög gilda ekki á Islandi í dag. Jesús sjálfur tók mjög frjálslega afstöðu gagnvart þeim. Móðgun gegn trúnni. Þá vil ég aðeins drepa á þau ummæli sálfræðings nokkurs, sem skrifaði í eitt Reykjavíkurblaðanna fyrir nokkru, að sálarrannsóknir væri „móðgun við trúna.“ Skárri er það nú spekin! Hugmynd hans um trú er auðsjáanlega sú, að trú sé eink- um í því fólgin að játa því og samþykkja í blindni hugsunar- laust, sem mönnum hefur kennt verið, kennisetningum mót- uðum af skilningi eða misskilningi löngu liðinna manna, sem hættar eru að vera lifandi sannleikur og em ekki orðnar ann- að í vitundinni en hljómandi málmur og hvellandi bjalla. Gallinn við þetta er nú fyrst og fremst sá, að varla nokkur maður getur trúað þannig (nema þá helzt einhverjir and- legir bjálfar). Menn geta játað slíkum kennisetningum og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.