Morgunn - 01.06.1966, Page 15
MORGUNN
9
fyrir því, að líkami Jesú hefði risið upp úr gröfinni, og var
kennisetningin um upprisu holdsins á þessu byggð. Einnig
er frá því skýrt í Matth. (27, 52), að líkamir margra dá-
inna manna hafi risið upp úr gröfum sínum, gengið inn í
Jerúsalem og birzt þar mörgum. En þessi hugmynd er auð-
sjáanlega sprottin af sömu ástæðu, nefnilega þeirri, að Gyð-
ingar gátu ekki á þessum tímum hugsað sér upprisu nema
í holdi, enda þekktu þeir lítið til fyrirbrigða af þessu tagi.
Nú mundu sálarrannsóknarmenn hins vegar ekki telja það
ólíklegt, að framliðnir menn gætu byggt sig upp þannig, að
þeir séu áþreifanlegir, og þarf því ekki á sögunni um tómu
gröfina að halda til að skýra upprisuna, enda yrði þá sagan
um himnaför hins jarðneska líkama alltaf vandræðaleg í
andrúmslofti heimsmyndar nútímans. Slíkar sögur geta að-
eins orðið til á tímum, þegar menn halda, að himinninn sé
bara nokkur hundruð metnjm ofan við jörðina, og að þar
búi guð og englarnir. Menn sem hins vegar eru handgengnir
nútímaþekkingu um alheiminn, gætu ekki trúað þeirri hug-
mynd, að Jesús hefði stigið í jarðneskum líkama til himins.
Þetta sýnir hvernig trúarhugmyndirnar verða að breytast
með breyttri heimsmynd, annars missa þær áhrifavald sitt.
Einmitt sálarrannsóknirnar gera oss fært að trúa uppris-
unni og himnaförinni, það er að segja, að Jesús hafi birzt
lærisveinum sínum, talað við þá og jafnvel látið þá þreifa á
sér, og ský hafi síðan numið hann frá augum þeirra, er hann
aflíkamast. Sagan verður í kjarnanum hin sama, en útskýr-
ingin önnur. Hún hefur jafnt trúarlegt gildi.
Duglegasti kristniboðinn eftir daga Jesú var þó ekki úr
flokki lærisveina hans, heldur Páll frá Tarsus, sem ofsótt
hafði kristna menn, unz Jesús sjálfur birtist honum á veg-
inum til Damaskus og kvaddi hann til fylgdar við sig, eins
og segir í 9. kafla Postulasögunnar. Enginn af fylgdarmönn-
um hans sá þó Jesúm, og virðist mega af því ráða, að hann
hafi a. m. k. þá ekki verið í jarðneskum líkama. En eftir það
talar Páll um Drottin sem andann, er vitjar hans marg sinn-
is og stjórnar ferðum hans.