Morgunn


Morgunn - 01.06.1966, Side 21

Morgunn - 01.06.1966, Side 21
Raynor C. Johnson: Lifum vér líkamsdauðann? ☆ Þessi ritgerð er tekin úr merkilegri bók eftir merkan mann. Bókin heitir á frummáli: A Réligious Outlook for Modern Man: Trúarviðhorf nútímamanns, og höfundur er eðlisfræðingur, háskólakennari í Mel- bourne i Ástralíu. Snæbjörn Jónsson skrifaði á liðnu ári um þessa bók í dagblaðinu Vísi, og hef ég getið hennar í prédikunum. Víðkunnasti predikari Breta nú, dr. L. Weatherhead, skrifaði formála að bókinni, þótt ekki sé hann höfundi sammála um allt, t. d. skoðanir hans á Kristi. Þar er klerkurinn kirkjukenningunni nær en eðlisfræðingurinn. Próf. Raynor G. Johnson hefur skrifað aðrar bækur i líkum anda og þessa. “The Imprisoned Splendour“ mun þeirra kunnust, en við gátur lifs og dauða hefur höfundur glímt um áratugi. Hann er varfærinn í fullyrð- ingum, lærður í mörgum greinum og ritar ljóst. Ég vænti þess, að les- endur Morguns hafi gagn og gleði af að lesa þennan kafla úr síðustu bók hins ágæta manns. Jón AuÖuns. Ég held að allir menn lifi þær stundir, að spurningin um líf að baki líkamsdauðans knýr dyra hjá þeim með meiri þunga en flestar spurningar aðrar. Hugsið um hina löngu sögu mannkyns, allar menningar- öldurnar, sem hafa risið, brotið síðan fald sinn og hnigið. Hugsið um allar þessar milljónir mannvera, sem allar áttu tilfinningar mjög líkar mínum tilfinningum og þínum, lifðu hér sitt afmarkaða, skamma skeið og bárust síðan burt. Þessar mannverur áttu sinn kvíða og sínar vonir, þær elsk- uðu og þjáðust, þekktu hugarstyrk og örvæntingu á víxl, þær dreymdi sína drauma og hurfu. Fæstir menn gefa þessum efnum gaum fyrr en þeir standa andspænis mikilli hættu eða alvarlegum sjúkdómi. Styrj- aldarógnirnar hafa knúið milljónir samtíðarmanna okkar til að hugsa um þessi efni. Spurningin um líf eða dauða verð- ur líka áleitin við okkur, þegar einhver kær vinur hverfur. Rödd hans, varir hans, hendur hans og augu, — allt þetta,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.