Morgunn - 01.06.1966, Side 33
MORGUNN
27
Við þetta sat í 18 mánuði. Þá var það, að maður nokkur,
kunningi Edith og ættingi C-fjölskyldunnar, komst undan
frá Tékkoslóvakíu og lagði leið sina til Englands. Hann leit-
aði Edith uppi og sagði henni sögu þá, sem hér skal sögð:
C. hafði átt þrjár dætur. Þegar hann dó hafði sú yngsta
þeirra verið aðeins ellefu mánaða gömul. Þegar hún var
3—4 ára gömul tók hún til að skrifa smáorðsendingar, sem
hún kvað vera frá pabba sínum. Hún stóð á því fastar en
fótunum, að hann væri alltaf í húsinu hjá þeim. Skömmu
síðar tók hún að tala við hann og sjá hann svo greinilega, að
hún gat lýst útliti hans út í hörgul. Fjölskyldan vísaði öllu
þessu á bug sem hreinasta hugarburði barnsins og gerðist
alvarlega hrædd um, að litla stúlkan væri ekki með fullu viti.
Skömmu síðar kom í óvænta heimsókn til þeirra maður,
sem var þeim algerlega ókunnur, og kvaðst vera meðlimur
spíritistafélags í borginni (Prag). Hann tjáði þeim, að mað-
ur, sem hefði nefnt sig C., hefði gert vart við sig gegn um
rniðil, gefið upp þetta heimilisfang, sem hann væri nú stadd-
ur í, og beðið sig að fara þangað. Hann sagði, að C. hefði
sérstaklega beðið þess, að yngsta dóttir hans fengi að koma
á miðilsfund hjá þessu fólki. Þetta var gert, og á fundinum
var tekin ljósmynd, þar sem C., auk annarra, kom fram á
myndinni. Litla stúlkan benti óðara á C. á myndinni og
sagði: „Þetta er hann pabbi, sem kemur til mín og talar
við mig.“
Og C. hafði gert meira. Hann hafði beðið þess, að einhver
í tilraunahringnum setti sig í samband við dr. K., og hann
hafði gefið upp heimilisfang hans. Einnig þetta var gert að
beiðni þessa óvænta og ókunna gests. Og þá hafði það komið
1 Ijós, sem Edith hafði verið sagt. á fundinum í Englandi,
uð hann hafði aðgang að vissum skjölum. Hann lét senda
hessi skjöl hinum opinbera saksóknara, sem hafði mál frú C.
til meðferðar, og með þeim afleiðingum, að henni var innan
skamms sleppt úr fangelsi.
Þetta sönnunargagn, þar sem f jöldi atvika gerist og bein-
ast öll að atriði, sem hinum látna C. hlaut að liggja í ákaf-