Morgunn - 01.06.1966, Qupperneq 35
MORGUNN
25
rannsökuðu þessi svokölluðu víxlskeyti, og þá kom í ljós, að
unnt var að lesa þau þannig saman, að fullt samhengi var í,
fuilt vit, og að þau báru vott lærdómi höfundarins í klass-
iskum fræðum.
Árum saman stóðu þessar tilraunir yfir, og þannig komu
fram fleiri ritgerðir um klassisk efni. Aðferðin var svo flókin,
uð hvað eftir annað hefði öllum öðrum en lærðum mönnum
í þessum fornmenntafræðum verið ókleift að leysa gátuna.
Þeir, sem hæfastir voru til að dæma málið, töldust ekki geta
komizt hjá að álykta, að hinn látni Myers væri höfundur
Þessa máls, og væri frá öðrum heimi að gera tilraun til að
koma á framfæri til jarðnesku samstarfsmannanna þeim
sterkustu sönnunum, sem unnt væri, fyrir því, að hann hefði
lifað líkamsdauðann.
Samband við látna menn.
Sambandið við látna menn, ef það er mögulegt, vekur
mönnum margar spurningar. Fólk spyr:
Er það gagnlegt?
Tefur það ekki fyrir þroska hinna framliðnu?
Er nokkur hætta samfara þessu sambandi?
Hvað segið þér um spiritismann?
Er það gagnlegt? Við neytum allra tiltækra ráða til að
halda sambandi við jarðneska vini, sem eru fjarvistum frá
°kkur. Mér er ekki kunnugt um, að nokkur maður telji
það óæskilegt. Þótt annar vinurinn sé burtu af jarðneskum
heimi, sé ég ekki að það sé óeðlilegt eða rangt að leita sam-
bands við hann, sé það mögulegt. Aðferðin þarf skiljanlega
að vera önnur en þegar tveir jarðneskir menn hafa með sér
samband. Til þess þarf jarðnesk sambandstæki, til hins þarf
sambandstæki, sem hvorttveggja eru í senn: jarðnesk og
ekki jai'ðnesk.
Tefur þetta fyrir þroska þeirra framliðnu, sem við náum
sambandi við? Að sjálfsögðu hefur samband við látna menn
fvær hliðar. Það er álíka barnalegt að hugsa, að hægt sé að