Morgunn - 01.06.1966, Page 74
68
MORGUNN
vígð. Þá vitrast henni á ný svipuð sýn, og sagði frá henni þá
um leið Sigurði Ólasyni lögfræðingi og fulltrúa í fjármála-
ráðuneytinu. Hann spurði hvort þetta gos yrði ekki í Kötlu
og benti þangað, en þar hafa mjög oft orðið gos. En þessu
neitaði frúin og benti í átt til Vestmannaeyja.
Með leyfi þeirra Erlings Davíðssonar og Sigurðar Óla-
sonar, verða hér birtar umsagnir þeirra um þetta efni, en
þær hafa áður birzt í Morgunblaðinu hinn 16. janúar s. 1.
Erlingur Davíðsson sagði:
Morgunblaðið hefur óskað umsagnar minnar um þá ,,spá-
sögn“ frú Láru Ágústsdóttur, miðils á Akureyri, er f jallaði
um Surtseyjargosið og er mér ljúft að verða við því.
Það var snemma vors 1963 að ég bað frú Láru um viðtal
fyrir blaðið Dag og varð það að samkomulagi. Kom ég síðar
á heimili hennar og manns hennar, Steingríms Sigursteins-
sonar, Bjarmastíg 3, af því tilefni. Var þá spurt og svarað
eins og gengur við slík störf og dreypt á kaffi. En sem við
unnum að viðtalinu fór ýmislegt, sem ekki var á dagskrá,
að bera fyrir þarna í stofunni. M. a. sá og heyrði frúin mikið
gos, sem hún sagði að verða myndi hér á landi á því ári. Fór
ég þá að leggja eyrun að, því gosfréttir eru jafnan stórar
fréttir. Tók hún svo að lýsa gosi þessu, en ég skrifaði niður
jafnóðum. „Það er mikið gos, sem stendur mjög lengi,“ segir
hún, ,,og það er mjög óvenjulegt gos.“ Síðan lýsti hún eldi,
ösku, gosmekki og drunum. Hvað eftir annað á meðan á lýs-
ingunni stóð sagði hún frá sjávarhljóði og brimgný.
Ég spurði hvort tjón yrði að þessu gosi, hvar það yrði og
nefndi í því sambandi þær eldstöðvar, sem ég mundi. öllu
þessu neitaði hún afdráttarlaust, en benti í suðurátt og sagð-
ist vita fyrir víst, að gosið yrði i þeirri stefnu. Svo sagði hún:
„Getur það átt sér stað að það gjósi í sjónum?“
Þegar Dagur með áðurnefndu viðtali við frú Láru var að
fara í pressuna (10. apríl 1963) fékk ég bréf frá frúnni, þar
sem hún bað um, að gosfréttirnar yrðu felldar niður, því þær
J