Morgunn - 01.12.1970, Side 17
MORGUNN
95
með öruggri vissu að greina <á milli þess, sem hinn framliðni
vill koma á framfæri og hins, sem slæðzt kynni að geta þar
saman við úr undirvitund miðilsins sjálfs. Af þessum sökum
cr jafnan rétt að taka því, sem fram kemur á miðilsfundum
með fullri gát og varfærni. En þrátt fyrir þá staðreynd, sem
engan veginn ber að loka augunum fyrir, að þessi sambönd
oru misjafnlega örugg, áreiðanleg og traust, og jirátt fyrir það,
að því er oft haldið á loft, að sannazt hafi svik á einstaka miðla
í einstökum tilfellum, er ekki unnt að neita því, að á miðils-
fundum hafa þráfaldlega komið fram svo veigamiklar sann-
anir fyrir sambandi við látna vini, að öruggari persónulegar
sannanir er naumast unnt að fá fyrir nokkrum sköpuðum hlut
né heldur meira sannfærandi.
Eg hygg, að öldungis sé óhætt að fullyrða, að meðal vísinda-
manna nú og í hópi menntaðra og hugsandi manna yfirleitt, sé
cfnishyggja fyrri tíma á hröðu undanhaldi, enda nýjustu rann-
soknir á efni og orku engan veginn til þess fallnar að renna
undir hana nýjum stoðum, heldur hið gagnsta'ða. Hins vegar
styðja bæði sálarrannsóknir nútimans og dulsálarfræðilegar til-
raunir eindregið og í auknum mæli kenningarnar um sál
mannsins og framhaldslíf liennar eftir likamsdauðann.
Þessi jarðneski líkami okkar er á ýmsan hátt prýðileg,
margbrotin og skemmtileg vél, og getur auk þess verið mjög
glæsileg útlits á meðan hún er tiltölulega ung, óslitin og vel
hirt. Orku sina fær þessi vél úr matnum, sem við horðum á
svipaðan hátt og billinn fær sína orku úr bensíninu, sem hann
brennir. Og úr þvi ég fór að minnast á bil í þessu sambandi,
má raunar segja, að ýmislegt fleira sé svipað með líkama okk-
ar og bílnum. í bílnum þarf að vera bilstjóri, sem ákveður
stefnu hans og hraða, hvert hann fer og hvernig hann bregzt
við hverju sinni, ef hindrun er í vegi eða eitthvað óvænt kemur
iyrir. Segja má, að hann sé sálin í bilnum, eins og andi okkar
er sálin i líkamanum. Stundum yfirgefur bilstjórinn bílinn í
gangi um stundarsakir og bregður sér frá. Sama gerum við i
svefni, þegar við förum úr likamanum um stund, eins og ég
gat um áðan. Það er venjulega nefnl sálfarir. Sumir bilstjórar