Morgunn - 01.12.1970, Page 24
102
MORGUNN
mikill, er 24 var kastað i senn. Seinna fjölguðu bau teningun-
um upp í 60, og árangurinn varð mjög góður. Ekki getum við
þó fyllilega dregið ályktanir af þessum tilraunum sökum þess,
að teningarnir, sem notaðir voru, voru ekki allir af sömu stærð.
Hinu verður ekki neitað, að þessar lilraunir bentu síður en svo
til þess, að hér væri um venjuleg aflfræðileg lögmál að ræða.
Hér skal ekki lengra farið út í þessa sálma í bili. Aðrar rann-
sóknir í þessar áttir munu verða framkvæmdar til þess að
ganga úr skugga um það, hvort tala teninga í hverju kasti hafi
ófrávíkjanleg áhrif á úrslit tilraunanna. En þegar hefur komið
í ljós, að allt bendir til þess, að svo sé. Ef hér væri á annað borð
um að ræða efnislega orku einvörðungu, mætti hins vegar við
því búast, að árangur yrði þvi meiri því færri teningum sem
kastað væri í senn. En sú hefur sizt orðið reyndin á.
En til eru fleiri hliðar á þessu máli. Athygli hefur verið
vakin á þvi, að það þurfi alls ekki að vera magn orkunnar, sem
veldur því, að einn flötur teninganna kemur oftar upp en ann-
ar. Þar gæti þvert á móti komið það til greina, að orkustraumar
þessir séu þannig, að þeir hitti ekki nema einn og einn tening
á fluginu og nái sambandi við hann. Og samkvæmt því er því
haldið fram, að þeirri orku muni fremur mistakast að hitta, ef
einn teningur er á ferðinni, heldur en ef mörgum er kastað
samtímis.
Gallinn við þessa skýringu er sá, að hér er rætl aðeins um
það, hve oft sá flötur kemur upp, sem óskað er eftir, en hlut-
fallstalan samkvæmt fjölda teninga í kasti ekki tekin með í
reikninginn. 1 PK tilraununum var það sú hlutfallstala, sem
ýmist stóð í stað eða hækkaði við breytta tölu teninga í hverju
kasti. Að sjálfsögðu má gera ráð fyrir því, að veiðimaður, sem
miðar á stóran hóp fugla á flugi, kunni að fá fleiri í skoti en
ef aðeins er einn á flögri. Hins vegar hlýtur hann að búast við
því að fá í skoti lægri hlutfallstölu af öllum hópnum, en ef skot-
mark hans er einn fugl aðeins. Ef kenningin um það, að ork-
unni mistakist oft að hitta teningana, er rétt, verða að sjálfsögðu
fleiri teningar fyrir áhrifum frá henni í hvert sinn, ef mörg-
um teningum er kastað samtímis, en hins vegar má búast við