Morgunn - 01.12.1970, Qupperneq 26
104
MORGUNN
í sumum PK tilraunum hafa verið notaðir teningar af ólíkum
stærðum til bess að komast að raun um það, hvort stærð tening-
anna skinti nokkru máli. Einna beztar í flokki slíkra tilrauna
voru þær, sem Frick gerði ásamt konu sinni, og áður hefur ver-
ið minnzt á. Þau notuðu 24 teninga í hvcrju kasti. Helmingur
þeirra voru meðal stórir, en hinir 12 miklu minni, en að öðru
leyti af nákvæmlega sömu gerð. Stærri teningarnir voru helm-
ingi stærri en þeir litlu. Niðurstaða tilraunanna varð sú, að
með stóru teningunum fékkst helmingi betri árangur en með
þeim litlu. Öllum teningunum, 24, var varpað úr sama ílátinu
í einu kasti. Aðstæður allar og aðferðir voru nákvæmlega eins.
Aðeins teningarnir voru misstórir. Og enn einu sinni varð nið-
urstaðan öfug við það, sem við hefði mátt búast, ef framan-
greindar tilgátur eðlisfræðinganna hefðu við réttmæt rök að
styðjast.
í einum tilraunaflokknum í Duke háskólanum voru notaðir
teningar tveggja mismunandi stærða. Þar var teningunum
varpað úr rafknúinni vél en ekki með handafli. Tveim tening-
um var varpað í senn og með nákvæmlega sama hætti. Og
annar teningurinn var jafnan ferfalt stærri en hinn, en að
öðru leyti voru báðir að öllu leyti af sömu gerð. Árangur til-
raunanna varð svo að segja hinn sami að því er snerti stóru
teningana og þá litlu. 1 þessum vélkaststilraunum, eins og
raunar líka í tilraunum Fricks, voru allar ytri aðstæður ná-
kvæmlega þær sömu, hvort sem kastað var smáum teningum
eða stórum.
Aðrar sambærilegar tilraunir hafa leitl hið sama eða svipað
í ljós, enda þótt aðstæður allar hafi ekki verið ávallt nákvæm-
lega þær sömu. Þegar á heildina er litið varðandi allar þær til-
raunir, sem gerðar hafa verið, bendir ekkert til þess, að það
geti verið nokkur eðlisfræðilegur efniskraftur, sem veldur því,
að í PK tilraunum kemur sú tala, sem sá, sem tilraunirnar eru
reyndar á, hugsar um og óskar eftir, jafnan oftar upp á tening-
unum en vera ætti, ef hending ein réði falli þeirra. I öðru lagi
virðist stærð teninganna sizt hafa meira að segja en það hve
mörg köst eru í hverri lotu. Það, að betur gekk með stóru ten-