Morgunn - 01.12.1970, Qupperneq 27
M 0 R G U N N
105
ingana 1 tilraunum Fricks, hefur sennilega aðeins stafað af ]iví,
að sú stærð hefur geðjast þeim hjónunum betur.
Framlcvæmdar hafa verið tilraunir til þess að reyna PK
hæfileika manna eða sálarorku, þar sem sá, sem reyndur er,
er ekki sjálfur viðstaddur tilraunirnar, heldur dvelur skemmra
eða lengra í burtu. Þær benda eindregið til þess, að ekki sé um
efniskennda heldur sálræna orku að ræða. Ef hér væri aðeins
orka heilans á ferðinni eða kraftbylgjur þaðan, ættu áhrifin á
teningana að dofna eftir því, sem fjarlægðin væri aukin og
árangurinn að verða minni. Þessa verður þó alls ekki vart i
slikum fjarvistartilraunum. Einum flokki tilraunanna í Duke
háskólanum var hagað þannig, að sá, sem prófaður var, stóð í
25 feta fjarlægð og hélt í spotta, sem tengdur var tækinu með
leningunum í. Þegar hann tók í spottann, féllu teningarnir til
jarðar. Ef þeim, sem prófaður var á þennan eða svipaðan hátt
var sagt, að honum mundi ganga betur að hafa áhrif á það
hvaða flötur kæmi upp á teningunum, ef hann væri svona
langt í burtu og hann trúði því sjálfur i raun og veru, þá varð
árangur tilraunanna mun meiri. Siðan voru tilraunirnar endur-
teknar á þá lund, að nú var hann látinn vera inni i stofunni,
þar sem teningunum var kastað, og honum talin trú um, að
með því að vera þar, mundi árangurinn verða ennþá betri. Og
nú brá svo við, að tilraunirnar í nálægð heppnuðust mun betur,
en verið hafði í upphafi við sömu skilyrði, eða álíka og þegar
hann var í 25 feta fjarlægð. Þessar tilraunir virðast því benda
til þess, að fjarlægðin skipti engu máli, að minnsta kosti ef hún
er ekki meiri en 25 fet. En til þess að ganga til fulls úr skugga
um þetta atriði, þarf að gera miklu fleiri og ítarlegri til-
raunir.
Gerður hefur verið nákva'mui- samanburður á þvi, hvort
þyngd teninganna og úr hvaða efni þeir eru gerðir hafi nokk-
ur áhrif á árangur PK tilraunanna. Við fengum sérstaka vél-
smiðju til þess að gera fyrir okkur teninga úr mismunandi efn-
um, og svo nákvæmlega eins, að ekki munaði um hársbreidd á
nokkurn veg. Sumir voru gerðir úr málmi, blýi, stáli eða áli,