Morgunn - 01.12.1970, Qupperneq 28
106
MORGUNN
aðrir úr Iré, hörðum viði eða mjúkum. Þegar svo þessar ólíku
tegundir teninga voru notaðar við PK tilraunirnar, kom í ljós,
að þyngstu teningarnir reyndust beztir til árangurs. Blý- og
stálteningarnir gáfu bctri raun en álteningarnir. Og barðviðar-
teningarnir gáfust betur, en hinir, sem gerðir voru úr linari
og léttari viði. Reyndin varð sú, að það voru aðeins málmten-
ingarnir, sem sýndu greinilega, að sá flötur, sem ætlazt var til,
kom oftar upp í hverri tilraunalotu, en átt befði sér stað, ef
hending ein hefði ráðið falli þeirra. Árangurinn, þegar tré-
teningarnir voru notaðir, varð mun minni, en þó merkjanlegur.
Flestum þeim, sem þessar tilraunir eru gerðar á, féll af ein-
hverjum ástæðum betur við hina þungu málmteninga, en þótti
hinir vera of léttir. Sennilega má ætla, að þetta ráði meiru um
árangur tilraunanna heldur en það út af fyrir sig úr hvaða
efni teningarnir eru gerðir. En það er enn eitt atriði, sem and-
mælir þeirri tilgátu, að PK orkan sé venjuleg efnisorka, er lúti
lögmálum aflfræðinnar.
Loks hafa svo verið gerðar tilraunir um það, hvort lögun
teninganna skipti nokkru máli. En frá sjónarmiði þeirra, sem
aðeins telja að um efnislega orku geti verið að ræða í PK til-
raununum, skiptir lögun þeirra teninga, sem notaðir eru, eðli-
lega noklcru máli vegna þess, að teningar af einni gerð velta
auðveldlegar og betur en aðrir. Sannleikurinn er þó sá, að við
þessar tilraunir hefur ekki komið í Ijós, að lögun teninganna
hafi nokkuð að segja. Við létum búa til fyrir okkur úr sama
efni fjórar mismunandi gerðir teninga. Tveir voru með odd-
hvössum hornum, tveir kúlulaga og með mjög smáum sléttum
flötum og aðrir tveir og tveir þar mitt á milli. Tilraunirnar
voru gerðar á þá lund, að fyrst voru aðeins notaðir fjórir ten-
ingarnir, sem líkastir voru kúlu að lögun, en síðan hinir fjórir
með stórum flötum og hvassari hornum. Árangur beggja til-
raunaflokkanna varð svo að segja nákvæmlega hinn sami. Lög-
un teninganna virtist því engu máli skipta. Og bendir þetta enn
til þess, að tilgáturnar um náttúrlega efnisorku séu haldlausar
að því er PK fyrirbærin snertir.
1 PK tilraununum hafa flatir hlutir einnig verið notaðir svq