Morgunn


Morgunn - 01.12.1970, Page 62

Morgunn - 01.12.1970, Page 62
140 MORGUNN reynt jafnvel að virkja þær okkur til fjár, valda og persónulegs ávinnings? Æskufólkinu er margt betur gefið nú en var í okkar ung- dæmi. Og þess sannmælis má eldri kynslóðin njóta, að hún hefur reynt og raunar einnig tekizt að gera meira fyrir börnin sín en þeim kynslóðum, sem áður hafa lifað, enda haft meiri efni og möguleika til þess. Hún hefur getað gefið börnunum meiri mat, fínni föt og séð þeim fyrir lengri skólavist og marg- háttaðri kennslu en fyrri kynslóðir áttu völ á. En henni hefur ekki tekizt að opna sálir þeirra fyrir háleitum hugsjónum, er heillað gætu hugina og kveikt elda í ungri sál. Og þess vegna er okkar bráðgjöra og efnilega æskufólk ein- kennilega stefnulaust og vegavillt á lífsleiðinni. Það á mikinn lífsþrótt, en tiltölulega litla lífsgleði. Það á kost á að njóta margs, en finnur sjaldnast hamingju í nautninni. Það kaupir hávaðasamar skemmtanir á dýrum gleðistöðum í stað þess að hlúa að og gefa sig á vald þeirrar lifandi lifsglcði og þeim fögn- uði yfir því að vera til, sem þó ávallt býr í ungri sál. Það er svo eirðarlaust, að það tínir upp í sig grænjaxlana i stað þess að bíða eftir því að berin verði þroskuð. Tíminn er því ekki fyrst og fremst tækifæri til þroska og dáða. Sumum finnst hann jafnvel vera ósýnilegur óvinur, sem þeim stendur beygur af, reyna að drepa með einhverju móti, en tekst það þó ekki, eða reyna að flýja frá, en geta það ekki heldur. Sú æska, sem þannig finnur til og þannig hugsar, verður leið á öllu og öllum. Hún á hvorki hugsjón lil að hrifast af né takmark til að keppa að. Henni líður illa. Hún fyllist gremju og uppreisnarhug. Stundum langar hana mest lil að brjóta og bramla allt i kring um sig. Og þessi mótþrói gegn því sem er, og hún finnur, að er öðru vísi en það ætti að vera, hann brýzt fram oft í hinum afkáralegustu myndum. Nægir þar að benda á hinn siðlausa flökkulýð ungs fólks, sem gengur undir nafn- inu Hippar. Unga fólkið virðist af ásettu ráði hætta að virða eða tileinka sér venjur og siði eldri kynslóðarinnar á flestum sviðum. Skemmtanir þess eru með öðrum blæ, framkoma þess
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.