Morgunn


Morgunn - 01.12.1970, Page 63

Morgunn - 01.12.1970, Page 63
MORGUNN 141 og klæðaburður er frábrugðið því, sem áður var. Stúlkurnar láta stýfa af sér fléttingana, en strákarnir safna lubba niður á herðar. Æsilegur hávaði, margfaldaður vir öllu hófi og magn- aður með rafknúnum tryllitækjum, samfara afkáralegum til- burðum og smekklausum skrípabúningi þeirra, sem þessum tækjum stjórna með ferlegum öskrum og óhljóðum. sem söfn- uðurinn lætur sefjast af, unz enginn veit sitt rjúkandi ráð, og þetta er að verða ein vinsælasta skemmtunin, sem mest er sótt eftir. Á sviðum lista og bókmennta er komin nýsköpun afkáraháttarins og grófleikans í stað þeirrar fegurðar í formi og blæ, sem áður hreif hugina og lyfti þeim jafnvel yfir stund og stað. Að sjálfsögðu er bæði rangt og ósanngjarnt að halda þvi fram, að þannig sé nú komið fyrir hinni ungu kynslóð yfirleitt. Því fer víðs fjarri, sem betur fer. En hinu verður ekki neitað, að só hópur, sem snýr inn á þessar furðulegu leið- ir, fer ört vaxandi, einnig hér ó landi. Eldra fólkið áfellist æskuna, telur hana vanþakkláta fyrir allt það, sem við höfum ó okkur lagt hennar vegna og látið henni i té. Og víst er okkur þetta nokkur vorkunn. Við höfum viljað börnunum okkar vel og reynt að búa í haginn fyrir þau á marga lund. En erum við sjálf í raun og veru ánægð í þeirri veröld, sem okkur hefur tekizt að breyta og bylta langt um- fram það, sem heppnazt hefur nokkuri einni kynslóð áður? Ef við eigum að vera hreinskilin, og það er jafnan hollast, þá hljótum við að svara þeirri spurningu neitandi. Sú veröld, sem visindi okkar og tækni hafa verið að umskapa, er engan veg- inn þannig, að við getum verið stolt af verkum okkar. Ef við ekki lokum augunum, verðum við að sjá mistökin, sem alls stað- ar blasa við og verða meira áberandi og augljósari með hverju ári sem líður. Okkur hefur ekki tekizt að skapa frið á jörð, öðru nær. Þrátt fyrir alla okkar tækniþróun og vísindi, sem gert hef- ur okkur kleift að taka náttúruöflin í þjónustu okkar og beizla svo að segja takmarkalausa orku til þess að vinna fyrir okkur, hefur engan veginn lánazt að skapa almenna velmegun. Sult- urinn og eymdin hefur aldrei hrjáð og ógnað jafnmörgum milljónum manna á þessari jörð eins og nú. Með ofurkappi vél-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.