Morgunn - 01.12.1970, Page 81
MORGUNN
159
ugur þessum málum, hefur víðsvegar flutt um þau fjölda er-
inda og skrifað um þau margar bækur. Sjálfur er hann einnig
gæddur miðilsgáfu, og hefur oft haft samhandsfundi fyrir vini
sína, en aldrei gert sér það starf að atvinnu.
Þetta mun vera siðasta bókin, sem komið hefur út eftir hann,
og nefnist hún á frummálinu Spiritualism today. I þýðingu
minni hefur hún hlotið nafnið: Miðlar og merkileg fyrirbæri.
Er það vegna þess, að hún hefur einkum að geyma frásagnir
um merkustu miðla, sem höfundurinn hefur kynnzt, hæfileika
Jjeirra og störf, en er ekki vísindalegt fræðslurit um spíritism-
ann, sögu hans og þróun fram til þessa dags. Þótti mér heitið
Miðlar og merkileg fyrirhæri eiga betur við.
1 bókinni er meðal annars sagt frá hinum stórmerk'a lækn-
ingamiðli Harry Edwards og stofnun þeirri, er hann rekur í
því skyni. Þar er og sagt allítarlega frá mörgum öðrum hug-
læknum. Þarna er að finna frásagnir um likamningafyrirbæri,
°g sagt er frá miðlum, sem einkum hafa lagt stund á ósjálfráða
skrift, og yfirleitt flestum tegundum fyrirbæra, sem gerast i
sambandi við miðla. Má segja, að frásögn hans sé víða lipur og
skemmtileg og komið víða við.
Sennilega er von á fleiri bókum nú fyrir jólin um þessi mál,
þó mér sé ekki um það kunnugt, þegar þetta er ritað. Það er
ekkert vafamál, að áhugi manna bæði hér á landi og víðar á
þeim bókum, sem fjalla um sálarrannsóknir, framhaldslífið og
samband við látna vini, fer stöðugt vaxandi. Menn þrá blátt
áfram þekkingu ó þessum sviðum, enda hlýtur það að skipta
hvern einasta hugsandi mann meira móli en flest annað, að
vita það með öruggri vissu og geta gert sér rökstudda grein
fyrir því, hvort hann er aðeins sálarlaus likami, sem á það eitt
fyrir hendi að leysast upp og verða að moldu, eða lifandi sál,
sem heldur ófram að lifa og starfa og þroskast eftir að jarðar-
lífinu lýkur.