Morgunn - 01.06.1980, Síða 8
6
MORGUNN
urs, er hún fór niður í Borgames og átti að vinna fyrir sér
á hótelinu þar. Frænka hennar Þórdís Bjarnþórsdóttir og
maður hennar Þórður ráku hótelið, og var hún þar allmörg
hin næstu ár. Þar í Borgamesi lágu leiðir þeirra saman,
Ragnhildar og Eggert Ölafssonar frá Litla-Skarði í Stafholts-
tungum. Þau felldu hugi saman og bundust ævitryggðum.
Ragnhildur fór einn vetur í Kvennaskólann hér í Reykjavik,
en svo giftust þau 19. desember 1920 og stofnuðu heimili,
sem stóð lengst af að Tjarnargötu 30 hér í borg. Eggert vann
hér fyrst við lýsisbræðslu Kjartans bróður sins á Þormóðs-
stöðum. Síðan stofnaði hann eigin bræðslu á Seltjarnamesi,
en gerðist svo lýsismatsmaður og var það að ævistarfi.
Þeim varð sex barna auðið, sem öll lifa móður sina, þau
Sesselja Svana, húsfreyja i Bandaríkjunum, Ólafur starfsmað-
ur hjá Bifreiðum og Landbúnaðarvélum, Elinbjörg Hulda
hjúkrunarfræðingur, Kjartan Þórir skipstjóri, Gottskálk Þor-
steinn verslunarmaður og Ragnhildur Sigríður húsfreyja í
Hafnarfirði.
Heimilið var alltaf mannmargt og stórt í sniðum. Ættingj-
ar þeirra hjóna beggja komu þar mikið og dvöldu oft lang-
tímum saman, og Ragnhildur annaðist fólk sitt og heimili af
einstakri alúð, og sterkur persónuleiki hennar skóp þar vissa
reisn. Hjónabandið var gott. Þótt þau Ragnhildur og Eggert
væm að miklu leyti ólík, þá voru þau tengd sterkum kær-
leiksböndum og áttu djúpa virðingu hvort fyrir öðru.
Skemmtileg kimnisgáfa þeirra beggja hafði og sitt að segja
og í sameiningu skóp þetta allt mjög skemmtilegt heimili.
Stálminni hennar og ættfræðiáhugi setti þar oft svip á um-
ræður. Rarmhildur var afar sérstæður og sterkur persónu-
leiki. Það fylgdi henni eitthvað, sem var í senn bæði áhrifa-
ríkt og lifandi. Samt var hún hógvær og frekar hlédræg, en
hún þurfti ekki að hafa sig í frammi, þvi sú persónugöfgi,
sem yfir henni hvildi, hafði þau áhrif, að allir veittu henni
athygli, og hún varð ósjálfrátt miðpunkturinn, hvar sem hún
kom.
Gagnvart börnum sínum þurfti hún aldrei að hækka rödd-