Morgunn - 01.06.1980, Blaðsíða 16
14
MORGUNN
dauða. Sömu menn og drápu bróður hans myndu einnig óska
honum dauða, ef hann sækist eftir forsetaembætti Banda-
ríkjanna.“
Sú persóna, sem stjórnaði þessum sambandsfundi, var hin
45 ára gamla Micki Dahne. En furðulega nákvæmir spá-
dómar hennar og óskiljanlegar samræður við frægar látnar
persónur hafa gert þennan miðil frægan um öll Bandaríkin.
Ásamt henni við borðið var dóttir hennar Jill, sextán ára
gömul, en hún hefur verið talin sá imglingur i Bandaríkjun-
um sem furðulegasta sálræna hæfileika hefur sýnt. Þá má
og nefna Edyne Decker, sem er miðill, sem oft hefur komið
fram í útvarpsþáttum frú Dahnes. Og að lokum skal telja
viðstadda hina skyggnu Ethel Taylor frá Lettlandi.
Fyrir framan hverja þeirra var skál með hreinu vatni, sem
átti að styrkja sambandið við látna persónu, sem hafði látið
lífið við drukknun.
Þær héldust allar i hendur og lokuðu augum þegar þær
reyndu að ná sambandi við Mary Jo.
Kertisloginn á borðinu blakti þótt loftið væri kyrrt.
Allt í einu stífnaði frú Dahne og höfuð hennar féll fram.
„Hún er héma. Ég finn að hún er nálægt,“ stundi hún.
„Mary Jo, Mary Jo, okkur langar til að beina til þín nokkr-
um spurningum.“
Og hún spurði: „Hver varð þér að bana?“
Við þetta breyttist rödd miðilsins í rödd ungrar stúlku.
Og röddin svaraði með dálítið nefmæltu hljóði og New Jersey-
málhreimi: „Það varð mér enginn að bana. Það drap mig
enginn! Vitið þið það ekki? Þið hljótið að vita að þetta var
slys. Það hefur enginn haldið þvi fram að þetta hafi ekki
verið slys.“
Og svo nokkru siðar: „Þetta var ansi skemmtilegt. öldunga-
deildarþingmaðurinn var þarna og allir elska öldungadeild-
arþingmanninn. Stelpurnar telja hann mestan allra. Það geri
ég líka.
Þá var hún spurð þessarar spurningar: „Voruð þið elsk-
endur?“