Morgunn


Morgunn - 01.06.1980, Page 17

Morgunn - 01.06.1980, Page 17
DUI.ARFULLI SKUGGINN . . 15 En þá kom dálítið fliss frá miðlinum og setningin: „Látið ekki eins og kjánar! Við vorum ekki elskendur. Ég kunni vel við hann og ég held að honum hafi líkað bara vel við mig. Já, ég veit það. En við vorum ekki elskendur. Það var fullt af stórfallegum konum sem gengu á eftir honum með grasið i skónum. Nei, ég unni öðrum manni sem er virki- lega góður, alveg dásamlegur.“ Nú varð þögn í herberginu í nokkrar mínútur. Þá spurði Ethel Taylor: „Hver var hann, Mary Jo, hver er hann?“ „Það get ég ekki sagt ykkur. Það skiptir engu máli núna. Það var vonlaust hvort eð var. Það var ekki til neins. Hami var kvæntur og ég hafði ekki hugsað mér að fara að halda við hann. Hann vildi að ég gerðist ástmær hans. Eg elskaði hann, en ég ætlaði ekki að verða hjákona hans. Þetta var fyrir löngu, löngu. Það var sársaukafullt og ég var óham- ingusöm út af því. En það er allt liðið hjá. Nú finn ég aðeins til friðar og rósemdar. Nafn hans myndi ekki skipta neinu máli og það myndi einungis valda honum sórsauka.“ En svo virtist sem röddin væri komin aftur i aðstæðurnar við samkvæmið á Chappaquiddick-eyju. „Mig svimar. Ég veit ekki hvað þetta er. Ég hef að vísu smakkað vín, en ég hef ekki drukkið svo mikið. Það er eitthvað athugavert við þenn- an drykk. Hver hefur sett eitthvað í glasið mitt? Einhver hefur gert það, en það horfa allir á mig eins og ég sé gengin af göflunum. Enginn þykist vita neitt um þetta. En það er eitthvað að drykknum. Ég ætla ekki að bragða meira af þessu. Ég verð að komast út. Ég verð að fá frískt loft. Mig svimar dálítið . . . það verður einhver að hjálpa mér út fyrir. Ö, mér finnst ég svo asnaleg. Það er engu líkara en kollurinn á mér sé fullur af ull og ég er svo syfjuð. Ef ég get bara fengið mér smáblund þá næ ég mér strax — ég veit það. Það er einhver að hjálpa mér inn i aftursætið á bíl öld- ungadeildarþingsmannsins. Ég er ógurlega slöpp, ég er varla fær um það sjálf I>að er nóg pláss hérna. Ég get vel rétt úr mér og fengið mér smáblund. Guð minn! Þetta var nú ljóti

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.