Morgunn


Morgunn - 01.06.1980, Page 18

Morgunn - 01.06.1980, Page 18
16 MORGUNN drykkurinn. Ég veit að einhver hefur laumað einhverju í hann. Ég er ekki vön því að vín fari svona í mig.“ Síðan kom þögn og þá var þessi spurning lögð fyrir þessa ókurmu rödd: „Hvað var um að vera í samkvæminu? Voru þessar sex stúlkur bara boðnar af kynferðisástæðum?“ Röddin flissaði svolítið og svaraði: „Nei, það var alls ekki þannig. Vissulega ætluðum við að skemmta okkur vel. Til þess eru samkvæmi, er það ekki? Nei, við vorum þama allar okkur til skemmtunar því við vorum vinir, góðir vinir, þið skiljið hvað ég á við, er það ekki? Þetta var boð með full- orðinna brag. Við vorum ekki komnar þangað til þess eins að hafa mök við einhverja. Þetta var sumarsamkvæmi.“ Þegar hér var komið stifnaði líkami frú Dahne aftur og höfuðið réttist upp. Og röddin hélt áfram: „Það em ein- hverjir að fara upp i bilinn. Tvær manneskjur, í framsætin. Þær vita ekki af mér hérna, en það gerir ekkert til því ég er svo drukkin." Síðan: „Það er hræðilegunr hávaði, vatn um allt, vatn allt í kringum mig. Það er svo kallt, svo kalt. Það er allt á hvolfi og vatnið er farið að hækka um mig. 'Ég trúi þessu ekki. Ég held ég eigi að deyja. Elsku pabbi! Elsku mamma! Hvað ætli þið hugsið? — Ó, þið verðið svo einmana. Ég þjá- ist þó ekki. Ég finn ekkert til.“ Síðan kom þögn uns spurt var aftur: „Var þetta erfiður dauðdagi?" „Nei, hann var það ekki. Hann var friðsamur. Segið þið pabba og mömmu að það hafi ekki verið erfitt. Segið þeim að vera ekki svona harmþrungin. Ég veit að þau eru ennþá sorgmædd. Þau hugsa um mig á hverjum degi og em mjög, mjög hrygg. Pabbi hefur gert sig veikan af áhyggjum af mér. Hann er mjög slæmur í maganum. Það er þegar búið að skera hann upp einu sinni. Hann verður að gangast undir annan uppskurð ef hann gætir sín ekki.“ Næst var um það spurt hvað hún hefði að segja um það hvemig Kennedy hefði verið kennt um dauða Mary Jo. Það stóð ekki á svarinu: „Þar er ekki sanngjarnt. Það er mjög ósanngjarnt. Það var ekki honum að kenna,“ sagði röddin.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.