Morgunn


Morgunn - 01.06.1980, Side 33

Morgunn - 01.06.1980, Side 33
HEFUR KIRKJAN BRUGÐIST? 31 ar eru í þessum efnum á allt öðru máli en forystumenn ís- lenskrar kirkju nú á dögum. Þetta eru mennirnir sem beita þekkingu sinni á sálrænum efnum til þess að undirstrika mik- ilvægi kenninga Krists, sem hvatti lærisveina sína og aðra til þess að beita kærleikanum í þágu þjáðra og sjúkra og taldi sig engan veginn vera þann eina sem gæti læknað með and- legu afli. Það eru einmitt þessir ágætu menn í prestastétt sem hafa komið þvi orði á islensku kirkjuna að hún væri viðsýn og frjálslynd. Og þeir þurfa ekki að segja gamansögur af lélegri kirkjusókn hjá sér. Enginn íslenskur klerkur hefur beitt sálarrannsóknum af annarri eins snilld í þágu kristinnar trúar og guðfræði- prófessorinn séra Haraldur heitinn Nielsson, enda rúmaði Fríkirkjan sem hann predikaði í iðulega ekki alla þá sem vildu hlýða. Biðraðir mynduðust við kirkjudymar áður en opnað var, svo fólk gæti tryggt sér sæti. Sumir kirkjunnar menn virðast ekkert hafa af þessu lært og telja lélega kirkju- sókn tákn dvínandi trúar landsmanna. Slíkt er mikill mis- skilningur. Og ekki hef ég kynnst trúaðri Islendingum en miðlum og huglæknum, þessu fólki sem yfirmenn kirkjunn- ar líta sérstaklega hornauga. Þetta fólk er ef til vill ekki sífellt með orð Krists á vörum, en það sýnir í athöfnum sín- um að það ber kærleik hans í hjarta sér. III. Konunglega læknafélagið í Lundúnum hélt nýlega tveggja daga ráðstefnu um nýjar aðferðir til lækninga á krabba- meini. Á þessari ráðstefnu vom auk læknanna, ráðgjafar í heilbrigðismálum, hjúkmnarkonur og fleiri. Þama var einn- !g stödd Eileen Hambling, huglæknir sem þegar er orðin góð- kunn hér á landi fyrir lækningar sínar. Það heillaði hana ekki lítið að heyra þama fremstu menn í læknisfræðum tala hiklaust um aðdáun sína á verkum og árangri huglækna;

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.