Morgunn - 01.06.1980, Page 38
36
MORGUNN
hlýtt er, að vetri til, en við opinn glugga að sumri til. Það er
hljóðara á heimilinu snemma morguns en seinni part dags.
Þið hafið öll daglegum skyldustörfum að sinna og við ger-
um okkur grein fyrir því, að þau verða að koma fyrst.
Þess vegna er betra að þið farið snemma á fætur tvisvar
eða þrisvar í viku í þeim tilgangi að rækja þetta verk rétti-
lega, heldur en að gera það með hálfum huga daglega.
Með þessum ráðum getið þið tengst hinum, sem leitast við
að vinna þetta verk. Eindrægni og einlægni er styrkur sem
hefur mikla þýðingu þegar við hugarorku er að fást.
Sérhver hefur það á valdi sínu að efla áunninn ljómandi
geisla til hinna hjálpandi sveita í andaheiminum.
Imyndið ykkur ljómandi ljósgeisla. Fyrst daufan eins og
sólargeisli, sem skín í gegnum þoku. Smátt og smátt léttir
þoku efasemdanna og sólargeislinn eflist í miðdegissól með
öllum sínum dýrðarljóma.
Þannig mun ljós ykkar skína og ljósgeislinn mun eflast af
kærleika ykkar til annarra, og þið munuð vinna verk sem mun
vekja undrun ykkar, vegna endurljómunar til þess, sem biður.
Mikil verður blessun Ljóssins Vera, þegar þið leitist við að
lýsa myrkur heims á þessum timum.
Alla þá, er eymdir þjá,
er yndi að hugga.
Og lýsa þeim, sem ljósið þrá,
en lifa í skugga.