Morgunn


Morgunn - 01.06.1980, Side 39

Morgunn - 01.06.1980, Side 39
Eins og fram kemur hér annars staðar í þessu virkjan lie ur jle^- MORGUNS hefur ritstjóri hans lent i irugðist nokkrum ritdeilum við klerka höfuðstaðar- ins um það hvort kirkjan hér á landi hafi brugðist ætlunar- verki sínu m. a. með því að sýna fólki með sálræna hæfi- leika ekki einungis tómlæti heldur beinlínis andúð. Grein ritstjóra hér í tímaritinu nægir til þess að gera ljóst í hverju hann telur þetta falið og þarf engu við það að bæta hér hér í þessu ritstjórnarabbi. Ég vil einungis taka það skýrt fram, að málstaður þeirra, sem reyna að beita sálrænum hæfileik- um sínum í þágu kærleikans mun alltaf eiga vísa vörn, ef þurfa þykir, í þessu timariti og annars staðar. fslenskir andans menn Skömmu eftir að deilur mínar hófust við kirkjunnar menn í Tímanum komu (þ. 24. febr.) tvær athyglisverðar greinar í Morg- unblaðinu. önnur var viðtal við Jón Sigurgeirsson fyrrver- andi skólastjóra á Akureyri, en hin þýðing tJlfs Ragnarsson- ar læknis eftir segulbandi á ræðukafla frú Noakes frá Rret- landi, en ræða þessi var flutt á ráðstefnu áhugamanna um lækningar eftir öðrum leiðum en vestræn vísindi hafa viður- kennt, sem haldin var í september sl. í Haselmare við Lun- dúni. Vinátta hefur lengi verið milli mín og þessara afbragðs- drengja, þeirra Jóns og tJlfs. Þessir menn eiga það sameigin- legt, að liafa þann tilgang að aðalmarki lífs sins, að vera

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.