Morgunn - 01.06.1980, Side 43
RITSTJORARABB
41
Heimssamtök
áhugamanna um
huglækningar
Þessi samtök WFH, World Federation of
Healing, voru stofnuð í Lundúnum árið
1975 i náinni samvinnu við hinn fræga
huglækni Harry Edwards og samstarfs-
fólk hans. Stofnendur voru um 100 frá 20 þjóðum og meðal
þeirra nokkrir læknar. Jón Sigurgeirsson er í þessum samtök-
um. Hann hefur um langan aldur liaft mikinn áhuga á heil-
brigðismálum og í blaðaviðtali við Morgunblaðið segir hann
meðal annars:
„Fyrir um fimmtán árum jókst enn áhugi minn á heil-
brigðismálum. Raunar hefur mér alltaf verið ljóst, að lifs-
viðhorf og hugsunarháttur skiptir miklu máli um vellíðan
fólks. Snemma las ég um kenningu dr. Helga Péturss þar
sem hann varar við „heljarveginum“, neikvæðum hugsunar-
hætti. Beinar tilvitnanir hef ég ekki á takteinum, en i forða-
búri sannleikans geymist þett.a i huga mér: Sé verið á lifs-
ins vegi verður allt auðveldara. Jafnvel getur samstilltur,
jákvæður hugur margra bætt veðurfarið.
Annað sannleikskorn, sem að minum skilningi er stað-
reynd, hefur mér geymst úr Bhagavad Gita eða Hávamálum
Indlands. Krishna, guðseðlið i manninum ræður Arjuna, per-
sónuleikanum, að standa til hliðar í orustunni. E>að er í orustu
hins daglega lífs og láta guðsvitundina leysa vandamálin.
En hið mesta leiðarljós sem öllum veitist, tel ég vera líf
og kenningu Jesú Krists. „Ég er vegurinn, sannleikurinn
og lífið“. „Leitið fyrst rikis hans og réttlætis og þá mun allt:
þetta veitast yður að auki“. „Elskið hver annan“.
Jesús læknaði með kærleiksaflinu með því að skilja og
þykja vænt um. I>annig eru raunar allir að bæta og lækna,
þótt í örsmáu sé, með því að þykja vænt um. Barnið er hugg-
unarþurfi. Móðir eða faðir strýkur hendi um koll þess og
kærleiksorkan streymir í gegn“.
Þetta lýsir vel hugsunarhætti Jóns Sigurgeirssonar.