Morgunn - 01.06.1980, Page 46
44
MORGUNN
hjúkrunarkonum kennt um dauðan? Þetta: Þegar hjartað
hættir að halda blóðrásinni gangandi, þá fær heilinn ekki
lengur neina næringu og skemmist mjög hratt. Það tekur
ekki lengri tíma en stundarfjórðung eða svo. Þegar hér er
komið, segja textar læknavísindanna, er persónuleiki sjúkl-
ingsins ekki lengur fyrir hendi. Hann hefur verið eyðilagð-
ur fyrir fullt og allt. Einstaklingurinn hættir að vera til.
Öldum saman hafa læknaskólar kennt læknum og hjúkr-
unarkonum þessa fagnaðarsnauðu kenningu. Og hvaða fólk
er þetta? Það er fólkið sem ætlast er til að hjálpi okkur á
banabeði — hjálpi okkur til að sætta okkur við dauðann!
Þess er tæplega að vænta, að þeir sem þessu trúa telji þetta
sérlega örvandi umtalsefni.
En nú vaknar sú spurning: hefur þessi kenning verið svo
vel staðfest að þar komist enginn efi að? Er þetta heilagur
sannleikur, sem við getum treyst hvernig sem á stendur? Eða
varðar okkur kannski ekkert um þetta? Heimskunnur maður
komst svo að orði um þetta:
„Ekkert val er óháð því, hvernig persónuleikinn metur
örlög sín, og líkaminn dauða sinn. Þegar allt er gert upp,
er það hugmynd okkar um dauðan, sem ákvarðar svör-
in við öllum þeim spurningum, sem lífið leggur fjrrir
okkur . . . Þess vegna verðum við líka að húa okkur
undir hann.“
Og hver sagði þetta? Það var Dag Hammarskjöld, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Þeirri spurningu var brugðið upp hér að framan, hvort
læknisfræðin væri að segja sannleikann, þegar hún segir okk-
ur að dauðinn sé endir allrar tilveru mannsins.
Enda þótt undarlegt megi virðast eru það einmitt þeir sem
eru að deyja, sem mynda sterkustu andmælin gegn þessari
læknisfræðilegu kenningu. Hvers verðum við vör þegar við
deyjum? Hvað sér hinn deyjandi við lokin? Er dauðinn í