Morgunn - 01.06.1980, Page 48
46
MORGTJNN
Dr. Karlis Osis fæddist í Riga á Lettlandi 1917. Lauk dokt-
orsprófi i Þýskalandi. Starfaði ásamt hinum fræga dr. J.B.
Rhine við Parapsychology Laboratory við Duke-háskólann
i Bandaríkjunum 1951—1957. Siðar var hann skipaður
rannsóknarstjóri við Parapsychology Foundation í New York,
þar sem hann fékkst meðal annars við könnun á athugunum
lækna og hjúkrunarkvenna á fyrirbærum, sem gerast á bana-
beði. Síðan 1962 hefur dr. Karlis Osis verið forstöðumaður
rannsóknardeildar American Society for Psychical Research
(Bandaríska sálarrannsóknafélagið).
Við sjáum því að hvorki skortir höfunda þessarar bókar
menntun né reynslu til þeirra rannsókna sem þeir lýsa í bók
sinni.
Það er nokkuð síðan að dr. Karlis Osis fór að fá vaxandi
áhuga á því sem fólk segir á banabeði. Árið 1966 kom út bók
eftir hann í Bandarikjunum um rannsóknir hans á þessum
efnum, og vakti hún mikla athygli. En fyrsta þess háttar
könnun dr. Osis var þó gerð 1959—1960 samkvæmt ósk
Parapsychology Foundation. En árið 1972 fékk hann styrk
til sams konar rannsókna i gjöróliku menningarþjóðfélagi,
Indlandi og til samstarfs í þessum mikilvægu rannsóknum
fékk hann, eins og áður er getið, Islendinginn dr. Erlend
Haraldsson í lið með sér.
Bókin SYNIR Á BANABEÐI fjallar um þessa indversku
rannsókn. En hún var gerð til þess að ganga úr skugga um
það, hvort niðurstöðurnar af rannsókninni í Bandaríkjunum
væru dæmigerðar fyrir bandarísku þjóðina. En niðurstöður
indversku rannsóknanna reyndust þær sömu, þrátt fyrir gjör-
ólíka menningu, trúarbrögð og lífsvenjur þessara ólíku þjóða.
Og hverjar eru þá niðurstöður þessara ágætu höfunda bók-
arinnaa StNIR Á BANABEÐI.
Til þess að skilja lil hlítar hvernig vísindamenn fara að
því að byggja upp rök að ákveðnum niðurstöðum er eina
leiðin að lesa þessa bók spjaldanna á milli. Það er engum
vorkunn, því þetta er spennandi lestur. Ég ætla að þessu sinni
að láta nægja, að vitna til orða höfunda bókarinnar, sem