Morgunn


Morgunn - 01.06.1980, Page 50

Morgunn - 01.06.1980, Page 50
48 MORGUNN Gunnar M. Magnúss: VÖLVA SUÐURNESJA. Útg.: Skuggsjá, 1979. Margt er ótrúlegra en það, að á Islandi séu góð skilyrði fyrir jákvæð andleg öfl. Hér á landi hafa engar orustur verið háðar öldum saman og reyndar aldrei neinar stórorustur. Andlegt andrúmsloft ætti því að vera tærara hér en víðast hvar í heiminum annars staðar. Yfir löndum þar sem blóð- ugir bardagar hafa geisað, hvíla árum saman andleg ský — hugsanagervi — sem myndast og magnast hafa af því and- rúmslofti haturs og ótta sem styrjaldir skapa. Eins og púk- inn í þjóðsögunni okkar sem fitnaði af lygum manna, magn- ast þessi hættulegu hugsanagervi við hatursþrunginn hugs- unarhátt og — það sem verra er — þangað geta illir menn sótt kraft til ódáða. Það eru til dæmis hugsanagervi sem valda því hve fólki líður yfirleitt vel í kirkjum. Þar reynir fólk yfirleitt að vera með jákvæðan hugsunarhátt, þótt ýmislegt annað kunni að koma fram í daglegu lífi. Þetta er einnig ástæðan til þess óhugnaðar sem grípur þá sem skoða gömul fangelsi þar sem jafnvel pyndingum kann að hafa verið beitt. Svona mikilvæg er hugsunin manninum. ísland kann því að njóta þess að nokkru, að hafa ekki verið vigvöllur gegn um aldirnar eins og mörg önnur lönd. Að minnsta kosti virðist það vera einróma álit þess sálræna fólks sem sækir þetta land heim og næmt er fyrir sálrænum áhrifum, að landið beri af öðrum löndum að þessu leyti. Það þarf því ekki að koma þeim á óvart, sem eitthvert skyn bera á þessi efni, þótt hér fæðist oft fólk með mikilfeng- lega sálræna hæfileika. Ein úr þeim úrvalshópi var tvímæla- laust Una Guðmundsdóttir í Sjólyst i Garði eða „Una i Garði“ eins og flestir kölluðu hana. Hún átti einnig til að bera þann hæfileika, sem oft fylgir þessu fólki, en það er kærleiksríkt hjarta.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.