Morgunn - 01.06.1980, Síða 52
50
MORGUNN
högunum, sem farið hafði til Akraness og þaðan til Reykja-
víkur, en síðan horfið, þannig að ekki spurðist til hans í
marga daga. Piltur þessi var talinn nokkuð drykkfelldur og
töldu sumir að hann hefði sennilega fallið i höfnina i Reykja-
vik og drukknað þar. Una fór sólförum til Reykjavíkur og
athugaði meðal annars höfnina. Kvað hún piltinn ekki hafa
drukknað þar, en hins vegar væri þar að finna á botninum
lík annars manns, sem þar virtist hafa flækst í gróðri. En
um piltinn sagði hún, að hann væri einn i litlu herbergi,
sem hún gæti ekki enn fyllilega gert sér grein fyrir hvar
væri, en hann væri mjög illa á sig kominn andlega og líkam-
lega. Sagðist hún geta helst lýst því svo, að hann væri frem-
ur dauður en lifandi, þótt hann væri að vísu ekki enn skilinn
við þetta jarðlíf.
Og hvað kom svo i ljós i þessu máli? Pilturinn fannst að
lokum í herbergi í húsi upp á Akranesi, þar sem engxnn hafði
komið í hug að leita að honum, og nær dauða en lífi af margra
daga drykkjuskap og fæðuskorti. En skömmu síðar fannst
lik annars manns í Reykjavíkurhöfn, rétt eins og Una hafði
sagt!
Eitt dæmi enn um þessar furðulegu sálfarir. Nágranna-
hjón Unu í Garði áttu dóttur gifta í Bandaríkjunum. Einn
daginn fengu þau hjón bréf frá dóttur sinni, sem olli þeim
miklum kvíða. Þar sagði hún foreldrum sínum, að við læknis-
skoðun hefði komið i ljós, að hún væri með krabbamein og
þyrfti þegar að ganga undir mjög hættulegan uppskurð.
Hjónin urðu eðlilega mjög hrygg og óhyggjufull við þessar
hörmulegu fréttir og snéru sér til vinkonu sinnar Unu, sem
aldrei brást neinum þegar illa horfði. Una ákvað að gera allt
sem i hennar valdi stæði. Hún fékk heimilisfang stúlkunnar
og sjúkrahússins og fór í trans þann sem var henni nauðsyn-
legur til sálfara. Af þessu er þá furðulegustu sögu að segja,
áð Una fór þannig til Bandaríkjanna og hafði í för með sér
látinn lækni, sem oft var i för með henni þegar á þurfti að
halda. Þessi læknir tók stúlkuna til meðferðar og er í stuttu
máli það frá för þessari að segja, að þegar Una vaknaði aftur