Morgunn


Morgunn - 01.06.1980, Side 53

Morgunn - 01.06.1980, Side 53
BÆKUH 51 heima í líkama sínum gat hún sagt þessum áhyggjufullu hjónum þær stórfréttir, að stúlkan væri úr allri hættu og myndi ná fullri heilsu. Hjónin fengu síðar bréf frá dóttur sinni um að allt hefði farið eins og Una hafði sagt fyrir, en bætti því við, að hinir bandarísku læknar hennar hefðu staðið undrandi yfir snöggmn bata hennar og talið hann með öllu óskiljanlegan! Svona mætti lengi telja. Það hlýtur að vera hverri mann- eskju unun að lesa bók um jafnundarlega og frábæra íslenska konu og Unu í Garði, því hún sýndi í lífi sínu ósigrandi mátt kærleikans, sem fólk þarf að venja sig á að beita til þess að trúa. Hann bregst engum sem til þess hefur unnið! Gunnar M. Magnúss hefur skrifað þessa bók af ástúð og djúpum skilningi á söguhetju sinni og færi ég honum mínar bestu þakkir fyrir þetta ágæta verk. VÖLVA SUÐURNESJA kom fyrst út 1969, en þá var ég erlendis og gefur þessi nýja útgáfa mér gott tilefni til þess að skrifa um þessa ágætu bók, sem hlýtur að hlýja hverjum lesanda um hjartarætur. Einnig þakka ég bókaútgáfu Olivers, Skuggsjá, fyrir að bæta þessari bók i flokk margra ágætra og gagnlegra bóka, sem sú bókaútgáfa hefur séð um og gefið út. Peter Andreas og Gordon Adams: HIMINN, JÖRÐ OG HUGUR MANNS. Ólafur H. Einarsson islenskaði. Víkurútgáfan, Reykjavik. Fleira er til á himni og jörS en heirnspekinga dreymir um. Orð þau, sem hér eru höfð að fyrirsögn voru fyrst skrifuð af manni fyrir mörgum öldum, sem í verkum sínum sýndi slíka snilld, þekkingu og vitsmuni, að engum hefur fram á þennan dag tekist að standa honum á sporði. Aldrei hefur verið meiri ástæða til þess en nú á tímum að vitna í þessi spaklegu orð. Ekki sökum þess að neitt hafi breyst í þessum efnum síðan þau voru skrifuð, heldur vegna þess, að jafnvel sjálf vísindin eru nú farin að veita þeim athygli. Framfarir

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.