Morgunn


Morgunn - 01.06.1980, Page 55

Morgunn - 01.06.1980, Page 55
BÆKUH 53 sem fram hefur komið við visindalegar rannsóknir á ýmsum hliðum þessara hæfileika, svo sem hugsanaflutning, skyggni, hæfileikum til þess að geta séð fram í tímann eða framtíðar- skyggni og hvers konar dulhæfni. Siðari hluti bókarinnar seg- ir svo frá ýmsum fyrirbærum, sem frægð hafa hlotið og halda áfram að verða mönnum ráðgátur. Má til dæmis nefna hina ævintýralegu frásögn af siðustu ferð Fawcetts höfuðmanns inn í frumskóga Brasilíu, þar sem þessi hugrakki Breti hvarf fyrir fullt og allt og um hann mynduðust furðulegustu frásagnir. Þótt segja megi, að ráðgátan um örlög Fawcetts höfuðsmanns hafi aldrei verið leyst eftir venjulegum leiðum, þá eru hér í þessari hók færðar að þvi mjög sterkar líkur, að honum hafi engu að síður tekist að ná sambandi við umheiminn eftir dulhæfnileiðum, en þeim var hann mjög kunnur sök- um persónulegra rannsókna. Telja ýmsir að ekki sé útilokað að höfuðsmaðurinn hafi til dæmis reynt að beita til þess hugsanaflutningi, því kona hans Nína Fawcett er sögð hafa fengið hugsanaskeyti frá honum á árinu 1934. Annars komu fyrstu hugsendingaboðin frá Percy Fawcett gegnum breska miðla 1930. Og tveim árum siðar staðfesti hinn frægi miðill, Estelle Roberts, í transi, að höfuðsmaður- inn væri enn á lifi í frumskógum Brasilíu. En án þess að hafa minnstu hugmynd um það tók annar miðill, sem ekki síður var frægur, Geraldine Gummins, árið 1935 að skrifa ósjálfrátt alla örlagasögu Fawcetts og rekja hana orði til orðs. Svo furðuleg varð þessi saga, að hún hefði verið talin meðal frægustu ævintýraskáldsagna, ef hún hefði verið birt sem slík. Ég bið lesendur mína forláts, að eyða svona miklu efni í þessari grein um þessa einu frásögn, en afsaka mig með því, að frásagnirnar um hvarf Fawcetts höfuðsmanns heilluðu huga ntinn árum saman, þangað til forvitni minni var svalað með frásögnum af þessari ósjálfráðu skrift hins fræga miðils Ger- aldine Gummins.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.