Morgunn


Morgunn - 01.06.1980, Side 65

Morgunn - 01.06.1980, Side 65
BÆKUR 63 En það er einmitt tilgangur bókar Harolds Shermans að kenna okkur þau viðbrögð sem ein mega að gagni koma gegn þessum vanda. Ég hef hér að framan bent á, að þessi snjöllu ráð hafi reynd- ar öldum saman staðið okkur til boða. En stundum getur verið erfiðleikmn bundið að fiima þessa fornu visku og okkur er því hollt að lesa góðar bækur sem draga þetta saman fyrir okkur og sýna okkur með lifandi dæmum úr nútímanum hvernig hægt er að lækna sjálfan sig af margs konar þján- ingmn. Og það er einmitt það sem Sherman er að gera með þessari bók sinni. Hann tekur það sjálfur skýrt fram, að það sem hann kennir í þessari bók sé ekkert nýtt. Það er forn viska. En alltof mörgum er ókunnugt um þá möguleika sem í þeim sjálfum búa til þess að leysa vandamál sín og þetta er því bók fyrir þá. Markmið þessarar mjög gagnlegu bókar er að kynna okkur ýmsar grundvallarreglur um sjálf okkur og veita okkur næga þekkingu til þess að þroska með æfingu meðvitaða stjóm á djúpvitundinni, sem getur veitt okkur næstum takmarkalausa möguleika til þess að breyta lífi okk- ar og örlögum lil liins betra. Hún kennir okkur meðal annars: Að lita á lífið sem tilgangsrikt fyrirbæri. Að sætta okkur við lífið og aðstæður þess með gleði, hvert sem umhverfi okkar er. Að unna hverri mannveru, — því við erum skyld öllu lífi. Að viðurkenna að þetta sé skynsemi gæddur og gáfum bú- inn alheimur. Að sjá í lítilmótlegasta erfiðismanni og mesta kennara jafna möguleika á þjónustu. Að vera hugrakkur — verjast þeirri freistingu að gefast upp i baráttu sem virðist vonlaus — öruggur í þeiiri trú, að sigur hefur alltaf verið grundvallaður á óförum, að hamingjan getur ekki annað en fylgt í kjölfar mót- lætis. Að skilja að þú uppskerð því aðeins ófarir, að þú farir ekki rétt með þann efnivið sem fyrir hendi er.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.