Morgunn


Morgunn - 01.06.1980, Síða 71

Morgunn - 01.06.1980, Síða 71
BÆKUR 69 Það er bersýnilegt af frásögn þessarar bókar og kemur beinlínis fram í tilvitnuðum orðum ákveðinna manna og sam- tölum við þá, að Jóhann hefur verið dugandi starfsmaður, því þeir sem veittu honum vinnu virðast hafa sóst eftir því að fá hann aftur til sín. En þegar á reyndi var þetta ekki nóg. Atvinnurekendum virðist hafa sviðið mjög forusta hans í bar- áttu verkalýðsins fyrir bættum kjörum og notuðu aðstöðu sína á þessum atvinnuleysistimum til þess að reyna að kúga hann eða múta honum til þess að hætta þessum afskiptum. Það er ekki falleg saga, en hér er hún rakin með upprifjun samtala, sem gerir það að verkum, að höfundur hlýtur hér að vera að segja ómengaðan sannleikann. Og það eru einmitt viðbrögð hans við þessum tilraunum, sem að mínum dómi gera baráttu hans hetjulega, því hann neitaði með öllu að bregðast félögum sínum, þótt freistingin hljóti að hafa verið mikil. I stað fullkomins atvinnuöryggis varð hann nú að horfast í augu við það að vera á svörtum lista meðal atvinnurekenda og svo bættist það við, að hann var kvæntur og þar að auki svo heilsulaus orðinn, að honum var beinlínis hætta búin af erfisisvinnu, því hann var berkla- veikur. Hann dvaldi langtímum saman á hælum og konan hans líka, enda dró þessi sjúkdómur hana að lokum til dauða. Látlaus lýsing höfundar á viðskilnaði þessara hjóna, sem unnust, er einn fegursti kafli þessarar bókar. Einn er sá þáttur í frásögn bókarinnar, sem mjög er at- hyglisverður, en það eru skyggnisýnir Jóhanns. Til dæmis maðurinn sem hann sér hvað eftir annað á gamla Lagarfossi á ýmsum stöðum á skipinu og misjafnlega klæddan eftir því hvað hann er að fást við þá stundina. Eru þær frásagnir sumar æsispennandi. Sýndi höfundur mikla hugdirfsku gagn- vart þeim reimleikum og komst hann síðar að því, að maður þessi hefði horfið af Lagarfossi í vondu veðri mn nótt og töldu flestir, að hann hefði tekið fyrir borð á stríðsárunum 1914 til 1918. Ég tel bókina 1 LÍFSINS ÖLGUSJÖ höfundi sínum til sóma.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.