Morgunn - 01.06.1980, Page 82
80
MORGUNN
maður sig hafa komist í snertingu við látna þegar háskólinn
í Chicago gerði um þetta umfangsmikla könnun fyrir nokkr-
um árum.
Þetta er einungis tölulegur fróðleikur. Hann segir okkur
ekkert um það hvað þarna gerðist i hverju tilviki, t. d. við
hvaða aðstæður þetta gerðist. Til þess þarf að afla upplýs-
inga um einstök tilfelli. Á hvem hátt skynjaði maðurinn
hinn látna? Við hvaða aðstæður varð þetta? Hvað einkenndi
hina látnu? Gáfu þeir eitthvað til kynna er þeir birtust mönn-
imi? Slíkum spurningum og mörgum fleirum, sem vakna
þegar litið er á tölumar hér að ofan, verður aðeins svarað
með sérstakri rannsókn, þegar aflað er upplýsinga um mörg
einstök tilfelli.
Nv'r fýsir okkur, sem stóðum fyrir nokkrum árrnn að könn-
uninni á vegum Háskóla Islands, að fá samband við fólk
sem að eigin mati hefur einhvern tíma og á einhvem hátt
orðið vart við látið fólk.
Við viljum hvetja alla þá, sem yfir slíkri reynslu búa, til
að láta okkur vita með því að senda okkur nafn sitt og heim-
ilisfang. Gjarnan má fylgja örstutt lýsing á reynslunni eða
því merkasta sem viðkomandi hefur reynt á því sviði.
Hefur þú nokkru sinni orðið vitni að því er
látinn maður virtist á einhvern hátt
gera vart við sig?
Ef svo er, viltu þá vinsamlega senda okkur nafn þitt, heim-
ilisfang og síma. Þá verður brátt haft samband við þig bréf-
lega eða i síma. Farið verður með allar upplýsingar sem trún-
aðarmál.
Vinsamlegast póstleggið bréfið með eftirfarandi utanáskrift:
Sál fræSirannsóknir
Háskóli tslands
101 Reykjavík.